Í FREMSTU RÖÐ

Í FREMSTU RÖÐ

Dr. Edda Blumenstein
Country Iceland
Genres Business
Language IS
Episodes 4
Latest 20.11.2026

Í Fremstu Röð er íslenskt hlaðvarp sem fjallar um hvað einkennir fyrirtæki, stjórnendur og starfsfólk sem skarar fram úr. Það miðlar fræðilegri þekkingu á hagnýtan hátt, ásamt reynslusögum úr íslensku atvinnulífi. Markmiðið er að brúa bilið milli fræða og atvinnulífs, rannsókna og reynslu, og þekkingar og framkvæmda. Hver þáttur veitir skýra innsýn í eitt viðfangsefni byggt á ritrýndum rannsóknum og raunverulegum dæmum.

Episodes

  • Góð hugmynd. Hvað svo.... Hvernig færðu fólk með þér?
    Góð hugmynd. Hvað svo.... Hvernig færðu fólk með þér? 20.11.2026 1h 7m
    Hvernig velurðu hvaða hugmynd á að þróa? Hvernig færðu fólk með þér í breytingar? Og hvenær er kominn tími til að breyta um leið eða leggja verkefni til hliðar?Í þessum þætti af Í fremstu röð ræði ég við Lóu Báru Magnúsdóttur um nýsköpun og vöruþróun. Lóa Bára sækir dæmi í reynslu sína hjá Orkla og Origo og segir frá því hvernig sköpun og öguð vinnubrögð geta farið saman, allt frá því að skilja þörf viðskiptavinarins þar til lausnin fer að skila árangri.Við ræðum hvernig litlar umbætur í þjónustu og vinnubrögðum geta skilað miklu samanlagt, hvernig leiðtogar byggja upp traust til að fólk þori...
  • Nike og smásalarnir: Hjónaband, ráðgjöf eða skilnaður?
    Nike og smásalarnir: Hjónaband, ráðgjöf eða skilnaður? 14.10.2026 1h 1m
    Hvað eiga samstarf Nike og smásala og hjónaband sameiginlegt? Meira en þú heldur, stundum þarf meira að segja hjónabandsráðgjöf.Árni Ingi Pétursson, Strategic Account Director hjá Nike, er gestur þáttarins. Við ræðum hvernig vörumerki og smásalar fara frá því að kaupa og selja vörur yfir í náið samstarf þar sem traust, gegnsæi og gögn leggja grunn að sameiginlegum árangri og betri upplifun viðskiptavina.Árni segir frá stefnubreytingunni hjá Nike sem opnaði dyrnar fyrir samkeppninni, hvers vegna það snýst ekki alltaf um að selja meira og hvað gerist þegar samstarfið reynir á. Hann deilir líka r...
  • Frá 40.000 klippikortum í vildarklúbb í appi
    Frá 40.000 klippikortum í vildarklúbb í appi 27.08.2026 33m
    Í þessum þætti ræði ég við Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóra hjá Te & Kaffi um tryggðarvegferð fyrirtækisins, frá tugþúsundum klippikorta yfir í stafrænan vildarklúbb.Af hverju velur fyrirtæki þá vegferð og hvað lærir það á leiðinni?Gögnin. Kerfin. Samstarfsaðilarnir. Sjálfbærnin. Og stóra markmiðið: að verðlauna bestu viðskiptavininina.Þessi þáttur var upphaflega tekinn upp sérstaklega fyrir nemendur mína í Tryggðarstefnu og stjórnun við Háskólann á Bifröst en fær nú að fær nú að rata út fyrir veggi skólans.Stutt og hnitmiðað Teams-samtal með raunverulegri reynslusögu úr íslensku atvinnulí...
  • Lokaðu hringnum er leyndarmálið á bakvið framúrskarandi viðskiptavinaupplifun (CX)
    Lokaðu hringnum er leyndarmálið á bakvið framúrskarandi viðskiptavinaupplifun (CX) 09.06.2026 1h 6m
    Hvers vegna eru sum fyrirtæki mun betri en önnur í að halda í viðskiptavini sína?Í þessum þætti ræði ég við Kára Þór Rúnarsson, stofnanda og framkvæmdastjóra Brilliant, um upplifun viðskiptavina á fyrirtækjamarkaði (B2B) og hvers vegna hún er orðin einn mikilvægasti samkeppnisþáttur fyrirtækja sem vilja vera í fremstu röð.Við ræðum meðal annars:Hvers vegna fyrirtækjamarkaður og neytendamarkaður krefjast ólíkrar nálgunarAf hverju NPS segir of aðeins hluta sögunnarHvernig fyrirtæki geta minnkað brottfall viðskiptavinaCustomer Lifetime Value og aðra lykilmælikvarða sem skipa máliHvers vegna flest...
  • 2 milljónir meðlima: Saga Club stærsti vildarklúbbur Íslands
    2 milljónir meðlima: Saga Club stærsti vildarklúbbur Íslands 28.05.2026 58m
    Í þessum þætti köfum við ofan í einn stærstu vildarklúbb Íslands - Icelandair Saga Club.Með mér er Magnús Þorlákur Lúðvíksson, forstöðumaður Saga Club, sem gefur okkur innsýn í hvernig vildarkerfi Icelandair hefur þróast frá hefðbundnum flugpunktum yfir í öflugt vistkerfi með yfir 2 milljónir skráðra meðlima og 400.00 þúsund virka notendur. Við ræðum meðal annars:Hvernig tryggðarvegferð Icelandair hófstMuninn á flugpunktum og fríðindastigumVerðmætustu viðskiptavininaHvernig vildarklúbburinn hefur þróast frá upphafi til dagsins í dagFramtíð vildarklúbbsins og leikjavæðingÁrangur og mælikvarðaTe...
  • Úr 600 milljónum í 100 milljarða: stefnan á bak við netverslunarrisann Boozt
    Úr 600 milljónum í 100 milljarða: stefnan á bak við netverslunarrisann Boozt 05.05.2026 1h 16m
    Í þessum þætti köfum við ofan í vegferð BOOZT, fyrirtækis sem hefur á tiltölulega skömmum tíma byggt upp eitt öflugasta netverslunarkerfi Norðurlanda.Við ætlum ekki bara að segja söguna heldur rýna í hvað liggur raunverulega að baki árangrinum og hvað önnur fyrirtæki geta lært af þessari vegferð. Við ræðum sérstaklega stefnu, omnichannel nálgun, mælikvarða, hlutverk stjórnar ásamt framtíðarhorfum og áhrif gervigreindar á verslun og þjónustu.Viðmælandi minn er Jón Björnsson stjórnarmaður hjá BOOZT.Ef þú hefur áhuga á að vita meira um:· Þróun Boozt frá startup í risaveldi· Af hverju Boozt lítur...
  • Vegferð ELKO: Frá verðsamkeppni í traustan ráðgjafa
    Vegferð ELKO: Frá verðsamkeppni í traustan ráðgjafa 21.04.2026 1h 2m
    Í þessum þætti fáum við innsýn í vegferð ELKO í átt að metnaðarfullu markmiði:að eiga ánægðustu viðskiptavinina á raftækjamarkaði - sem náðist á þessu ári með afgerandi hætti.Ég ræði við Óttar Örn Sigurbergsson, framkvæmdastjóra ELKO, um hvað liggur raunverulega að baki þessum árangri. Við köfum í hvernig ELKO hefur umbreytt stefnu sinni – frá því að keppa fyrst og fremst á verði og úrvali yfir í að verða traustur ráðgjafi fyrir viðskiptavini.Í þættinum ræðum við meðal annars:· Hvernig rödd viðskiptavina mótar stefnu· Gagnadrifna ákvarðanatöku og mælanlegan árangur· Innleiðingu omnichannel og...
  • NOVA Fyrir þig
    NOVA Fyrir þig 07.04.2026 58m
    Í þessum fyrsta þætti af Í Fremstu Röð fjöllum við um NOVA, fyrirtæki sem hefur hlotið íslensku ánægjuvogina 17 ár í röð. En frá því að þátturinn var tekinn upp bættist enn eitt árið við! Í þættinum ræði ég við þær Renötu Blöndal, fararstjóra upplifunar og Elfu Arnardóttur, þjálfara viðskiptaþróunar. Við köfum sérstaklega í tryggðarvegferð NOVA og hvernig fyrirtækið byggir upp langtíma samband við viðskiptavini sem snýst ekki um afslætti, heldur að skapa raunverulegt virði, þannig að viðskiptavinir elski að vera en hati að fara!Við förum yfir hvað liggur raunverulega að baki árangri, allt frá...

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.