Vörumerki
Margrét Björk Jónsdóttir
0
Hvernig byggir maður upp traust, trúverðugleika og sterkt vörumerki? Margrét Björk Jónsdóttir ræðir við frumkvöðla og sérfræðinga sem hafa unnið fyrir eða byggt upp sterk vörumerki - og deilir sinni eigin vegferð í leiðinni.
Episodes
-
S2E12 | Það sem virkaði fyrir 5 árum virkar ekki lengur 03.09.2026 1h 11mMargrét og Arna setjast niður í lokaþætti seríu 2 og horfa bæði til baka og fram á við. Markaðsheimurinn hefur breyst hratt- og aðferðir sem virkuðu fyrir nokkrum árum geta í dag jafnvel haft öfug áhrif. Við ræðum hvað er að breytast í markaðsmálum, hvernig gervigreind hefur áhrif á vörumerki og hvers vegna raunverulegt, persónulegt efni verður sífellt verðmætara. Við förum líka yfir áhrifavalda og PR-pakka, hvernig fyrirtæki geta valið rétta miðla og hvers vegna það skiptir meira máli að skilja markhópinn og markmiðið en að reyna að vera alls staðar. Að lokum færum við umræðuna yfir á okkar e... -
S2E11 | Andrea Magnúsdóttir - „Ef ég get það, geri ég það“ 20.08.2026 1h 32mFatahönnuðurinn, verslunareigandinn og hlaðvarpsstjórnandinn Andrea Magnúsdóttir, konan á bak við Andrea by Andrea, er gestur okkar í þessum þætti. Við förum yfir vegferðina frá fyrstu skrefum hennar í fatahönnun og eigin rekstri yfir í að byggja upp vörumerki sem er orðið nátengt hennar persónulega vörumerki. Við tölum um sköpunarkraftinn, frelsið sem hún þarf til að vinna, reksturinn á bak við fallega heiminn og hvað þarf til að skapa upplifun sem fær viðskiptavini til að koma aftur. Við ræðum líka þróunina í verslunum almennt, fast fashion, hönnunarstuld og minnkandi virðingu fyrir hönnun.... -
S2E10 | Garðar & Lóa hjá GoodGood – Frá eldhúsborði í 10.000 verslanir um allan heim 13.08.2026 1h 18mVörurnar frá GoodGood eru fáanlegar í 31 landi og um 10.000 verslunum, þar á meðal hjá risum á borð við Walmart, Whole Foods, Kroger og Sprouts, og innan skamms bætist Target í hópinn. Færri vita þó kannski að þetta alþjóðlega vörumerki er alíslenskt. Garðar Stefánsson, forstjóri og meðstofnandi Good Good, og Lóa Fatou, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, eru gestir þáttarins og fara með okkur yfir ótrúlega vegferð vörumerkisins, sem hófst við lítið eldhúsborð í Hafnarfirði fyrir rúmum áratug. Í þættinum heyrir þú meðal annars um: Hvernig fyrsta Good Good sultan varð til úr umfram lager af sætuefn... -
S2E9 | Sylvía Briem - Villti hesturinn sem landaði Red Bull á Íslandi 06.08.2026 1h 33mAthafnakonan Sylvía Briem Friðjónsdóttir er annar stofnenda Steindal ehf., sem flytur inn og markaðssetur vörumerki á borð við Töst, El Taco Truck og Red Bull á Íslandi. Sylvía hefur víðtæka reynslu af sölu, markaðssetningu og þjálfun. Hún starfaði um árabil hjá Dale Carnegie og hlaut þar alþjóðlega viðurkenningu sem besti þjálfari heims. Hún hélt auk þess úti geisivinsæla hlaðvarpinu Normið, ásamt Evu Mattadóttur um fimm ára skeið. Í þættinum ræðum við hvernig Steindal varð til og hvernig fyrirtækið stækkaði gríðarlega á örfáum árum. Við förum meðal annars yfir um hvernig hugmyndin að Töst og... -
S2E8 | Þóra Hrund- Að velja hugrekkið fram yfir eftirsjá 23.07.2026 1h 30mÞóra Hrund Guðbrandsdóttir er frumkvöðull, markþjálfi, markaðsfræðingur, gusumeistari og annar stofnenda Munum- vörumerkis sem hófst sem dagbók en hefur síðan þróast í mun stærri sýn og samfélag í kringum heilsu og vellíðan. Í þættinum ræðum við hvernig hugmyndin að Munum varð til og hvernig dagbókin seldist í allt að 12.000 eintökum á ári, þrátt fyrir vantrú margra á verkefninu í upphafi. Þóra segir einnig frá útrásinni sem þær fóru af stað með, hvers vegna þær ákváðu að hætta við hana og hvað sú ákvörðun kenndi þeim um vöxt, metnað og mikilvægi þess að vita hvenær tími er kominn til að breyt... -
S2E7 | Ásthildur stofnandi Mist & Co - Vandamálið sem varð að vörumerki 16.07.2026 1h 6mÞessi þáttur fangar kjarnann í því sem Vörumerki snýst um: að sjá vandamál, fá hugmynd að lausn...og framkvæma hana. Ásthildur Gunnlaugsdóttir var aðeins 26 ára þegar hún fékk hugmynd að lausn við vandamáli sem hún hafði sjálf glímt við í starfi sínu sem förðunarfræðingur. Úr þeirri hugmynd varð Mist & Co., íslenskt vörumerki sem gerir þrif á förðunarburstum einfaldari, fljótlegri og fallegri. Í þættinum ræðum við meðal annars: - Framleiðsluferlið og þær óvæntu áskoranir sem koma upp þegar hugmynd á að verða að alvöru vöru- Umbúðirnar og hversu stóru hlutverk þær gegna í upplifuninni af vörume... -
S2E6 | Andreas hjá Sahara - Fleiri fylgjendur eru ekki markmiðið 09.07.2026 1h 30mAndreas Aðalsteinsson hjá auglýsingastofunni Sahara veit sannarlega eitt og annað um markaðssetningu, ekki síst þegar kemur að samfélagsmiðlum. Hann fer yfir það sem virkar í dag: hvað grípur athygli, hvað skapar tengingu og hvað hjálpar vörumerkjum að vaxa. Umræðuefni þáttarins eru meðal annars: Er „branding vs. sala“ röng spurning? Af hverju segir fylgjendatala ekki alla söguna? Hvaða íslensku áhrifavaldar standa sig best? Hvernig nær maður athygli fólks á fyrstu 3 sekúndunum? Hvað gerir content áhrifaríkt? Skiptir rétta tilfinningin meira máli en „súpa dagsins“? Andreas hjálpar okkur að set... -
S2E5 | Hjörtur (og Magnús) - Hvernig getur gervigreind einfaldað líf þitt? 02.07.2026 1h 22mÍ þættinum fáum við Hjört Sigurðsson, gervigreindarsérfræðing og stofnanda Mynstra, til að útskýra AI á mannamáli. Tilgangurinn er að átta sig á hvernig venjulegt fólk, frumkvöðlar og fyrirtæki geta byrjað að nota gervigreind til að einfalda lífið og spara tíma. Stjarna þáttarins er þó án efa Magnús, persónulegi gervigreindaraðstoðarmaðurinn hans Hjartar. Hann les og svarar tölvupóstum, fer yfir verkefnalista, gerir matarplan, tekur til á SharePoint….og skrifar ljóð í frítímanum. Við ræðum líka bréfaklemmu-heimsendaspána, hvort AI muni taka yfir störfin okkar, hvað fólk gerir ennþá betur en ge... -
S2E4 | Fyrstu skrefin að sterku vörumerki 25.06.2026 1h 13mStútfullur þáttur af ráðum fyrir alla sem stefna á að stofna eigið fyrirtæki, hvort sem það er verslun, vörumerki, þjónusta, námskeið, vara..... eða bara hugmynd sem er farin að biðja um að verða að einhverju stærra. -
S2E3 | Sara í Júník - Andlit vörumerkis í 15 ár 18.06.2026 1h 16mSara Lind Pálsdóttir var aðeins 21 árs þegar hún opnaði tískuvöruverslunina Júník. Þrátt fyrir enga reynslu úr viðskiptalífinu, en með brennandi áhuga á tísku og fatnaði, sá hún gat á markaðnum og ákvað að stökkva í djúpu laugina. 15 árum síðar er Júník ein þekktasta fataverslun landsins og Sara sjálf löngu orðin órjúfanlegur hluti af vörumerkinu. Í þættinum fer Sara yfir ótrúlega sögu Júník: fyrstu árin, LA-ferðirnar, djammkjólana, útvarpsauglýsinguna sem allir þekkja, samfélagsmiðlana, áhrifavalda, sumartískuna og margt fleira. Við ræðum líka hvernig það hefur verið að vera andlit vörumerkis... -
S2E2 | Davíð Örn Símonarson - Hinn fullkomni prófíll 11.06.2026 1h 41mDavíð Örn Símonarson, framkvæmdastjóri og annar stofnandi Smitten, er fyrsti viðmælandi okkar í seríu 2 af Vörumerki. Í þættinum ræðum við söguna á bak við skemmtilegasta dating-app í heimi, hvernig app verður að vörumerki, fjármögnun fyrir frumkvöðlaverkefni og bókina sem kveikti frumkvöðlaeldinn hjá Davíð. Davíð segir frá verkefnunum, tilraununum og lærdómunum á undan Smitten og af hverju það hefur aldrei komið til greina að gefast upp. Svo förum við auðvitað í stóru spurninguna: Hvernig er hinn fullkomni Smitten-prófíll? Hvaða myndir virka? Hverjar alls ekki? Hver eru rauðu flöggin? Og hver... -
S2E1 | Arna & Margrét – „Hver er ég þá?“ 11.06.2026 1h 1mÍ fyrsta þætti s02 ræðum við miklar breytingar í persónulega lífinu hjá Margréti frá síðustu seríu og sjálfsmyndarkrísu sem Arna hefur staðið frammi fyrir eftir að hún sagði skilið við auglýsingastofuna Sahara. Á ólíkan hátt fundum við okkur báðar á þeim stað þar sem við þurftum að spyrja okkur: ….Hver er ég þá? Þá segir Arna frá hugmyndinni á bakvið H9 Studio og Margrét fer yfir stöðuna á vörumerkinu sínu. Þetta er þáttur fyrir alla sem standa á tímamótum eða þurfa smá hvatningu til að taka næsta skref. 💥 Bara byrja - og gera það svo vel! --- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Góa, T... -
09 | Baldvina Snælaugsdóttir – Sagan hennar mömmu 18.12.2025 1h 10mÍ þessum þætti sest ég niður með mömmu minni, Baldvinu Snælaugsdóttur (Baddý). Upphaflega átti þátturinn að snúast um rúmlega 25 ára feril hennar í markaðsmálum, eftirminnilegar herferðir og lífið í bransanum.En úr varð djúpt og persónulegt samtal um það þegar lífið fór á hvolf á einni nóttu, eftir að hún veiktist alvarlega í kjölfar heilaskurðaðgerðar fyrir nokkrum vikum. Við ræðum örvæntinguna á spítalanum, bataferlið og hvernig hugsanir og baráttustraumar fólksins hennar skiluðu sér á ögurstundu þegar mest á reyndi.Hún segir einnig frá því hvernig hún hafði fundið þetta á sér og gert ráðsta... -
08 | Heiðbjört Ósk - Þegar erfiðar aðstæður kveikja nýjan neista 11.12.2025 1h 5mViðmælandi þáttarins að þessu sinni er ekki forstjóri stórfyrirtækis eða virtur aðili í markaðsbransanum. Heiðbjört Ósk er kona sem við getum margar tengt við, móðir, snyrtifræðingur, sem eftir 15 ár í sama starfi var farin að finna fyrir leiða og þörf fyrir breytingu. Þegar sonur hennar veiktist alvarlega og var frá skóla í tæp tvö ár fór Heiðbjört að kenna honum heima. Það kveikti neista hjá henni sem hún ákvað að fylgja og hún skráði sig í kennaranám.Nú þremur árum síðar hefur lífið tekið algjöra U-beygju. Auk þess að hafa skipt um starfsvettvang gaf Heiðbjört á dögunum út sína fyrstu bók;... -
07 | Aníta Hirlekar - Tískubransinn og valdamiklir viðskiptavinir 27.11.2025 1h 24mAníta Hirlekar, margverðlaunaður íslenskur fatahönnuður, ræðir sinn einstaka feril sem hefur leitt hana að því að hanna fyrir risastór erlend merki og klæða áhrifamesta fólk landsins. Við fáum að heyra um það þegar forsetinn okkar, Halla Tómasdóttir, hafði samband við Anítu á 📲Messenger þegar hana langaði í kjól og hvernig það þróaðist í samstarf þeirra á milli. Við ræðum tískubransann sem er harður heimur, hönnunarstuld, jafnvægið á milli þess að skapa og reka verslun. Við ræðum einnig um sköpunarferlið, sjálfstraust og ferlið við að finna eigin stíl, auk þess sem Aníta gefur ungum hönnuðum... -
06 | Guðrún Sørtveit - „Fyrirtæki vilja bara góðar hugmyndir“ 20.11.2025 1h 8mGuðrún Helga Sørtveit segir frá því hvernig vörumerkið hennar, Fyrsta árið, varð að veruleika eftir nokkurra ára umhugsun.📖 Við ræðum allt ferlið, frá hugmynd, hönnun og framleiðslu yfir í markaðssetningu og sölustaði. 💬 Hún ræðir áskoranir sem fylgja því að vera áhrifavaldur með tugþúsundir fylgjenda, athugasemdir á djamminu, dónaleg skilaboð og þá tilfinningu að allir hafi skoðun á henni. 💡 Guðrún deilir góðum ráðum um árangursríkt samstarf fyrir áhrifavalda og hlaðvarpsstjórnendur og útskýrir af hverju góðar hugmyndir eru sterkasti sölupunkturinn. Þáttur fyrir alla sem eru eða langar að... -
05 | Guðmundur Heiðar - Er ferskleiki ofmetinn? 13.11.2025 1h 13mGuðmundur Heiðar Helgason er hugmynda- og textasmiður og ráðgjafi í almannatengslum hjá vörumerkjastofunni Tvist. 🚌 Hann starfaði sem upplýsingafulltrúi hjá Strætó í nokkur ár og segir frá nokkrum af þeim flóknu málum sem hann þurfti að takast á við. Þar af ber eitt mál hæst, sem hann segir það erfiðasta sem hann hafi tekist á við á sínum ferli. Þetta er spjall af betri gerðinni sem inniheldur bæði persónulegar frásagnir og pælingar um okkar uppáhalds umræðuefni, vörumerki. Gummi er óhræddur við að segja hlutina beint út og hikar ekki við að benda á mál sem honum þykir hafa mátt tækla betur ú... -
04 | Sirrý Arnardóttir - Fjölmiðlar og framkoma 13.11.2025 1h 19mSirrý Arnardóttir er ein reyndasta fjölmiðlakona landsins með yfir þrjátíu ára reynslu í faginu.Við ræðum hvernig áfangi hjá henni fyrir nokkrum árum landaði mér draumastarfinu, sem jafnframt markaði upphafið að mínum fjölmiðlaferli. Við förum yfir fjölmiðlastarfið, kosti og galla, breytingar á fjölmiðlaumhverfinu síðustu ár og ráð fyrir þá sem langar að starfa í faginu. Þá bregður Sirrý sér í kennarahlutverkið og gefur mér gagnleg ráð varðandi þetta hlaðvarp. (Note to self: muna að anda) Sirrý hefur undanfarin ár starfað sem stjórnendaþjálfari, kennari og rithöfundur og hefur kennt fjölda fól... -
03 | Eva Laufey - Að leyfa sér að þróast 30.10.2025 52mEva Laufey Kjaran Hermannsdóttir þekkir markaðsmál frá sjónarhorni bæði áhrifavalds og markaðsstjóra. Hún hefur skapað sín eigin tækifæri í gegnum árin og staðið af sér fjölmiðlastorma. Við ræðum „stóra kökudeigsmálið,“ hvort Tax Free dagar Hagkaups séu barns síns tíma, hugsanlega hagsmunaárekstra og hvort nokkur munur sé á manneskjunni og vörumerkinu Evu Laufey. 🎙️ Þáttur um að takast á við nýjar áskoranir, vera óhræddur við að gera mistök og treysta því að hlutirnir fari eins og þeir eiga að fara.📱 Fylgdu Vörumerki á bakvið tjöldin á Instagram @vorumerki♡ Þátturinn er tekinn upp í Tekk stúd... -
02 | Vilma Ýr - „Innsæið öskraði á mig“ 14.10.2025 56mEinlægt spjall við Vilmu Ýr Árnadóttur, sem eftir 19 ár í sama starfi ákvað að stökkva út í djúpu laugina, fylgja innsæinu og byrja upp á nýtt. Í dag rekur hún sitt eigið fyrirtæki, Vilma Home, sem hefur vaxið hratt undanfarið ár. Við ræðum ferlið sem það er að byggja upp vörumerki frá grunni og Vilma segir meðal annars frá mistökum sem kostuðu hana margar milljónir.Þetta er þáttur stútfullur af góðum ráðum og hvatningu fyrir þá sem langar um að breyta til eða jafnvel stofna eigið fyrirtæki 💡 ♡ Fylgdu Vilmu á Instagram @vilma_home♡ Fylgstu með Vörumerki á bakvið tjöldin @vorumerki ♡ Þátturinn...
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.