Biblían á mannamáli

Biblían á mannamáli

Halldór Lár
Country Iceland
Language IS
Episodes 54
Latest 17.11.2026

Í þessu hlaðvarpi lesa þáttastjórnendur Nýja testamentið og ræða textann á einföldu, skýru og lifandi máli. Tengd eru Gamla og Nýja testamentið og litið er á Biblíuna með kærleikann að leiðarljósi. Þátturinn inniheldur viðtöl við alls konar fólk og góða gullmola. Markmiðið er að gera þennan forna texta, sem hefur mótað menningu okkar og sögu, aðgengilegan fyrir alla.

Episodes

  • Dagur 74 - Að fá Heilagan Anda?
    Dagur 74 - Að fá Heilagan Anda? 17.11.2026 29m
    Þessi þáttur ræðir um Pál og lærisveina hans í Efesus (Postulasagan, 19. kafli), borg sem var verslunar- og trúarmiðstöð með hið mikla og stórfenglega Artemisarhof og helga himnasteininn. Við fáum innsýn í viðbrögð borgarbúa, umbætur vegna kristinnar boðunar, fyllingu heilags anda hjá nýtrúuðum, þjálfun trúboða og hvernig safnaðarstarf breiddist út til Kólossu og annarra borga. Umfjöllunin tengir sögulegan bakgrunn, trúarlega umbreytingu einstaklinga og stofnun safnaða, með vísan til bréfa og ýmissa persóna. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson Heimildir: Frank Viola, The Untold Story of the New Testa...
  • Dagur 73 - Flokkadrættir
    Dagur 73 - Flokkadrættir 13.11.2026 24m
    Velkomin í Biblían á mannamáli. Í þessum þætti er fjallað um Apollós, hinn mælskumikla lærisvein frá Alexandríu sem kom til Efesus og síðar Korintu. Prískila og Akvílas fræddu hann nánar, og var honum loks boðið til Korintu að þjóna - það átti hins vegar eftir að leiða til flokkadrátta. Sjónum er einnig beint að Páli sem kemur til Efesus, þjálfar sex samstarfsmenn og undirbýr áframhaldandi útbreiðslu fagnaðarerindisins — með sterka áminningu um mikilvægi einingar og að forðast sundrung innan safnaðarins. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson Heimildir: Frank Viola, The Untold Story of the New Testament...
  • Dagur 72 - Óvenjuleg kraftaverk
    Dagur 72 - Óvenjuleg kraftaverk 10.11.2026 31m
    Velkomin í Biblían á mannamáli: Við fylgjum Páli á þriðju trúboðsferðinni (um 53–57 e.Kr.), þegar hann stofnar og styrkir kirkjur víða í Asíu og tekur mikilvægar ákvarðanir fyrir framtíð boðunarinnar. Þátturinn fjallar um þrjár lykilákvarðanir Páls — fjáröflun fyrir fátæka í Jerúsalem, þjálfun nýrra starfsmanna og áform um að fara til Rómar og áfram til Spánar. Auk þess skoðum við aðeins starfið í Efesus; óvenjuleg kraftaverk og síð'ast en ekki síst, átök við andasæringar(sjö synir Skeva). Sagan sýnir hvernig kraftaverk, trúaruppbygging og sameining kirkjunnar breyttu samfélaginu og undirstrik...
  • Dagur 71 - Sjálfshyggjan þvælist fyrir
    Dagur 71 - Sjálfshyggjan þvælist fyrir 06.11.2026 25m
    Velkomin í Biblían á mannamáli. Þessi þáttur fjallar um Pál postula og för hans frá Korintu; samstarf við Prískilu, Akvílas, Tímóteus og Sílas; vinnu þeirra og þrautir við að stofna söfnuði Guðs ríkis. Við sjáum hvernig gyðingar ásaka Pál fyrir að brjóta lögmál þeirra en landstjórinn Gallíon neitar að taka málið og stöðvar réttarhöldin. Söfnuðurinn í Korintu er ungur og óþroskaður. Páll gagnrýnir sundrungu þeirra og sjálfshyggju, sem gerir það að verkum að þau skilja ekki dýpri hluti fagnaðarerindisins. Þættinum lýkur með för fjórmenninga til Efesus og lokum annarrar trúboðsferðar Páls.
  • Dagur 70 - Af hverju lét ekki blessað fólkið segjast?
    Dagur 70 - Af hverju lét ekki blessað fólkið segjast? 03.11.2026 27m
    Velkomin í Biblían á mannamáli: við ræðum Síðara Þessaloníkubréf Páls, skrifað um árið 51 e.Kr., og skoðum helstu efnisþætti bréfsins. Kaflarnir fjalla um misskilning varðandi endurkomu Jesú Krists; ofsóknir og hópa sem villa fyrir söfnuðinum; auk gagnrýni á þá sem vilja ekki vinna. Páll hvetur til þrautseigju og ábyrgðar í söfnuðinum. Hvernig í ósköpunum stóðts fólkið allar þessar þrengingar?
  • Dagur 69 - Páll safnar hári
    Dagur 69 - Páll safnar hári 30.10.2026 29m
    Í þessum þætti förum við í gegnum atburði Postulasögunnar kafla 18 og fylgjum Páli í þjónustu hans í Korintu: prédikanir, mótstaða og kraftaverk, ásamt því hvernig kirkjan vex í kærleika og samfélagi við son Guðs. Við skoðum einnig þemu eins og persónulegt samband við Guð, ákvörðun Páls um nasíreaheit, og misskilning um endurkomu Drottins, sem leiðir til bréfsins sem við lesum næst. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson Heimildir: Frank Viola, The Untold Story of the New Testament Church
  • Dagur 68 - Óravíddir lífsins
    Dagur 68 - Óravíddir lífsins 27.10.2026 36m
    Þessi þáttur ræðir hvernig Páll bregst við ofsóknum og hvetur söfnuðinn til kærleika og trausts. Hann fjallar einnig um hina kristnu von, um upprisu hinna sofnuðu og gönguna á vegi Jesú Krists. Við erum lifandi sem börn ljóss og kærleika. Hlaðvarpið tengir Ritninguna við nútímann; fjallar örstutt um nær-dauða reynslu; daglegt líf trúarinnar og boðar kraft kærleika og ljóss til að yfirstíga ótta og dauða.
  • Dagur 67 - Lifandi Orð sem ber ávöxt
    Dagur 67 - Lifandi Orð sem ber ávöxt 23.10.2026 29m
    Velkomin í „Biblían á mannamáli“. Í þessum þætti förum við yfir 2.kafla Fyrra Þessaloníkubréfs: bakgrunn Páls, ofsóknir sem hann mætti og hvers vegna eining og fjölskylduhugsun í kirkjunni skiptir svo miklu máli. Rætt er um boðskap Páls — að hann predikaði ekki til að þóknast mönnum heldur Guði — og hvernig hið lifandi orð Guðs (sjá Jóhannes 15) vinnur í hjörtum fólks; hvernig Guð sniðlar til, svo við berum meiri ávöxt kærleikans. Þátturinn tekur aðeins á fölskum kenningum og andstöðu, og endar með gleði Páls yfir vexti og kærleika í Þessaloníku: kjarninn er að elska Drottin og náungann.
  • Dagur 66 - Persónulegur Guð
    Dagur 66 - Persónulegur Guð 20.10.2026 29m
    Þessi þáttur fjallar um fyrra bréf Páls til Þessaloníkumanna (um 51 e.Kr.). Páll hvetur söfnuðinn til að halda fast við trúnna þrátt fyrir ofsóknir, sýnir eigin heiðarleika og útskýrir kraft heilags anda sem snertir hjörtu fólks. Þátturinn greinir myndina af Guði sem föður ("abba") og kirkjuna sem fjölskyldu — bræður og systur — og leggur áherslu á kærleika í verki og vonina um endurkomu Krists. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
  • Dagur 65 - Erfiðar spurningar en góðar
    Dagur 65 - Erfiðar spurningar en góðar 16.10.2026 28m
    Í þessum þætti ræðum við um aðdraganda fyrra bréfs Páls til Þessaloníkumanna, fréttirnar sem hann fékk frá Sílasi og Tímóteusi og hvernig þær lýsa stöðu safnaðanna: vaxandi trú, ofsóknir og innri erfiðleikar. Þátturinn snýr einnig að ásökunum gegn Páli um græðgi og illt hugarfar; og spurningum um þjáningu, dauða og von í ljósi eilífrar áætlunar Guðs.
  • Dagur 64 - Ótti og angist Páls
    Dagur 64 - Ótti og angist Páls 13.10.2026 24m
    Þessi þáttur fjallar um komu Páls til Korintu; andlega þreytu hans eftir baráttu og fangelsi og hvernig hann hóf að boða í borg sem var rík af verslun, þrælahaldi, trúarbrögðum og lauslæti. Umfjöllunin kynnir borgarandann, íþróttahöldin, félagslegu átökin og hlutverk Akvílasar og Priskillu, sem samstarfsmanna Páls — og boðskapinn um að Guð sýnir styrk sinn í okkar veikleika. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson Heimildir: Frank Viola, The Untold Story of the New Testament Church
  • Dagur 63 - Ókunni Guðinn
    Dagur 63 - Ókunni Guðinn 02.10.2026 33m
    Páll og Sílas flæmdir úr Þessaloníku færa sig til Beroju, þar sem kristni nær fótfestu hjá gyðingum og konum úr efri stéttum. Páll fer síðan til Aþenu þar sem hann ræðir meðal annars við heimspekinga og heldur fræga ræðu um altari hins ókunna guðs - við skoðum söguna á bak við það altari. Þátturinn tengir saman ferðalög, trúboð og heimspekilegar umræður - og sýnir hvernig Páll aðlagar boðskap sinn að menningu og leit að sannleika meðal ólíkra áheyrenda, án þess þó að breyta fagnaðarerindinu. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson Heimildir: Frank Viola, The Untold Story of the New Testament Church.
  • Dagur 62 - Ásakanir og óeirðir
    Dagur 62 - Ásakanir og óeirðir 29.09.2026 32m
    Í þættinum er farið yfir ferðir Páls postula og fylgdarlið hans í Þessalóníku á annarri trúboðsferðinni: hvernig þeir boðuðu Krist sem Messías, urðu til breytinga meðal fólks og urðu fyrir mótstöðu vegna keisaradýrkunar og borgaræsings. Sagan lýsir heimsóknum í samkunduhús, hittingi hjá Jason, uppreisn almennings, ákærum fyrir að raska friði. Við sjáum hvernig Páll, Sílas og Tímóteus brugðust við áskorunum og byggðu upp lifandi samfélag trúaðra. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson Heimildir: Frank Viola, The Untold Story of the New Testament Church
  • Dagur 61 - Blóð, sviti og söngur
    Dagur 61 - Blóð, sviti og söngur 25.09.2026 37m
    Velkomin í „Biblían á mannamáli“. Í þessum þætti förum við yfir Postulasöguna, kafla 16 - 17, þar sem Páll og Sílas eru í fangelsi í Filippí og syngja hástöfum. Jarðskjálfti losar fjötra þeirra. Fangavörðurinn og fjölskylda hans taka boðskapinn og snúa til trúar á Krist. Þátturinn skoðar einnig hvernig fyrstu söfnuðirnir mynduðust, hlutverk kvenna eins og Lýdíu, menningu stórborga eins og Þessaloníku og hvernig trúin breytir lífi fólks þrátt fyrir ofsóknir og erfiðleika.
  • Dagur 60 - Var Lýdía sú fyrsta?
    Dagur 60 - Var Lýdía sú fyrsta? 22.09.2026 30m
    Páll postuli, Sílas, Tímóteus og Lúkas koma til Filippi eftir siglingu frá Tróas til Neapólis og göngu eftir Via Egnatia. Filippi er rómversk nýlenda með sterka keisaradýrkun og fámennan hóp gyðinga, þannig hittast trúaðar konur niður við ána, en ekki í samkunduhúsi. Við ána prédikar Páll fyrir hópnum og Lýdía, efnuð kaupkona frá Þýatíruborg, tekur við boðskapnum, skírast og opnar heimilið sitt fyrir postulunum. Ambátt með spásagnaranda fylgir hópnum og Páll rekur andann út í nafni Jesú. Eigendur ambáttarinnar reiðast og kalla saman mannfjölda; Páll og Sílas eru, barðir og hnepptir í fangelsi...
  • Dagur 59 - Maðurinn frá Makedóníu
    Dagur 59 - Maðurinn frá Makedóníu 18.09.2026 24m
    Í þessum þætti ræðum við um Postulasöguna 15:36–41: Páll og Barnabas halda aftur til safnaðanna í Galatíu, en deila um að taka Markús með sér. Barnabas fer til Kýpur með Markúsi, en Páll tekur Sílas og síðar Tímóteus með sér í nýja trúboðsferð. Við skoðum hvernig frásagan tengir allt saman og leiðir til bréfaskrifa postulanna. Innra líf safnaðanna hélt þeim sterkum þrátt fyrir átök og ofsóknir. Maður frá Makedóníu kemur og talar við Pál. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson Ýmsar heimildir: Frank Viola - The Untold Story
  • Dagur 58 - Saltvatnsbrunnur
    Dagur 58 - Saltvatnsbrunnur 15.09.2026 31m
    Velkomin í Biblían á mannamáli. Í þættinum ljúkum við yfirferð á Jakobsbréfinu: skoðum ástandið innan safnaðanna, mismunun á milli ríkra og fátækra og boðskapinn um að trúin beri góðan ávöxt. Við ræðum hvernig orð okkar og dagleg hegðun afhjúpa hjartað, notum myndlíkingar um beisli og stýri varðandi stjórn tungunnar og skoðum áherslur um kærleika og réttlæti.
  • Dagur 57 - Fullkomið lögmál frelsisins
    Dagur 57 - Fullkomið lögmál frelsisins 11.09.2026 23m
    Í þættinum fáum við innsýn í Jakobsbréf 1:19–27. Við ræðum um að vera fljót til að hlusta og heyra, sein til að tala og sein til reiði; um mikilvægi þess að taka við orðinu og vera gerendur þess frekar en aðeins heyrendur. Við tengjum þetta við Jesú sem er lifandi orð og frelsandi lögmál. Þátturinn vekur athygli á valdi tungunnar, umhyggju fyrir fátækum og því hvernig sönn trú birtist í kærleiksríkum verkum. Við byrjum og endum með bæn um að sjá Guðs nærveru í daglegu lífi.
  • Dagur 56 - Engir flöktandi skuggar
    Dagur 56 - Engir flöktandi skuggar 08.09.2026 30m
    Jakobsbréfið, kafli 1: um að finna gleði í þrautum, þroska trúarinnar og hvernig þol og verk sýna sanna trú. Jakob talar til gyðingakristinna í dreifingunni um átök, misrétti og ábyrgð gagnvart fátækum. Þátturinn fjallar einnig um að biðja Guð um visku, að forðast tvílyndi, að trú án verka sé dauð, og að Guð sé Faðir ljósanna - stöðugur, góður og fullur af náð.
  • Dagur 55 - Hálfbróðir Jesú
    Dagur 55 - Hálfbróðir Jesú 04.09.2026 41m
    Í þættinum er Galatabréfinu lokið og við færum okkur yfir í Jakobsbréfið. Við skoðum sögulegt samhengi bréfsins: ráðstefnan í Jerúsalem, ágreiningur um lögmál Móse og boðskap Páls. Það var hálfgert kreppuástand í mörgum hinna kristnu safnaða og Jakob ávarpar stöðuna. Áherslan er á að trúin verði sýnileg í verki, að kristin kærleikssamfélög komi til hjálpar fátækum — allt er þetta sett í raunverulegt samfélagslegt samhengi frumkirkjunnar. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson Tilvísun: The Untold Story / Frank Viola

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.