Meining

Meining

RÚV Hlaðvörp
Country Iceland
Language IS
Episodes 15
Latest 16.11.2026

Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.

Episodes

  • 1849
    1849 16.11.2026 57m
    Ráfað er á milli þess gamla og nýja með hjálp gamalla hljóðbrota úr safnkistu Ríkisútvarpsins. Rætt er við samtímafólk þegar hægt er eða einhvern sem tengist upptökunum með einum eða öðrum hætti.Í þættinum hlýðum við á viðtal við Runólf Runólfsson, bónda og vinnumann í Skaftárhreppi, á tíræðisafmæli hans árið 1949. Við heyrum því rödd manns sem fæddist árið 1849. Í viðtalinu lítur Runólfur yfir farinn veg, fer með vísur, líkræður og kvæði og segir frá hinu og þessu úr fortíðinni. Hann segir meðal annars frá mannskaðanum mikla árið 1871. Hann var einn sjómannanna sem komust lífs af þann örlagar...
  • Lýsislampar & næturverðir
    Lýsislampar & næturverðir 09.11.2026 52m
    Í þættinum er ráfað á milli þess gamla og nýja með hjálp gamalla hljóðbrota úr safnkistu Ríkisútvarpsins. Rætt er við samtímafólk þegar hægt er eða einhvern sem tengist upptökunum með einum eða öðrum hætti. „En í sama mund og glaðir borgarar sveiflast um í dansi eftir dillandi hljómsveit eru aðrir að hverfa til starfa.“ Svo hefst þáttur Sveins Skorra Höskuldssonar árið 1959 þar sem hann kynnir sér starf næturvarðar í byggingu Landsbankans í Austurstræti. Að gefnu tilefni berum við saman reynslu næturvarða fortíðarinnar og næturvarða nútímans. Einnig heyrum við brot úr gömlu viðtali við mann fæ...
  • Arnarhreiður Hitlers
    Arnarhreiður Hitlers 02.11.2026 58m
    „Hann lét mig alveg vita af því að hann hefði komið í þessa ferð til að komast upp í Arnarhreiðrið,“ segir Hólmfríður Bjarnadóttir, leiðsögukona hjá Bændaferðum, um íslenskan ferðamann sem deildi því með henni að hann aðhylltist nasisma og sóttist eftir ferð upp í Arnarhreiðrið á tíunda áratugnum í eins konar pílagrímstilgangi. Hún segir sömuleiðis frá ferðamönnum sem vildu ekki heimsækja svæðið.Í þættinum er fjallað um Khelsteinhaus, eða Arnarhreiðrið, með hliðsjón af nýafstöðnum eldsvoða. Illugi Jökulsson segir sögu þess, frá kostnaðarsömum og flóknum framkvæmdum og algengum misskilningi í t...
  • Bakslagið VIII.
    Bakslagið VIII. 26.10.2026 30m
    Síðasta þætti Bakslagsins lýkur með ráðum til valdeflingar og eldri viðtalsbrotum. Við sögu kemur gagnræða, lúmskir fordómar, stjörnufræði og ýmislegt fleira. Rætt er við móður þáttastjórnanda, Sigrúnu Eggertsdóttur kirkjuvörð í Grafarvogskirkju, Esjar Smára Gunnarsson, menntaskólanema, Bjarndísi Tómasdóttur formann Samtakanna 78 og Kára Garðarsson framkvæmdastjóra Samtakanna 78.Þetta er seinni þáttur af tveimur Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Bakslagið VII.
    Bakslagið VII. 19.10.2026 55m
    Í þættinum heyrum við í ungu fólki og menntakerfinu og skoðum hugmyndir úr nýjustu bók Judith Butler, Who’s Afraid of Gender? Í bókinni rýnir hán í kyn og kynvitund frá líffræðilegu og félagslegu sjónarmiði og skoðar þann samfélagslega ótta sem hefur orðið til í tengslum við kynjahugmyndafræði eða „gender ideology“. Esjar Smári Blær Gunnarsson menntaskólanemi segir frá reynslu sinni af því að koma út sem trans á unglingsárum. Við heyrum líka raddir ungs fólks úr hinsegin félagsmiðstöðinni. Íris Ellenberger, prófessor við deild faggreinakennslu í samfélagsgreinum, og Auður Magndís Auðardóttir,...
  • Bakslagið VI.
    Bakslagið VI. 12.10.2026 59m
    Í þættinum er haldið áfram að fjalla um hatursorðræðu og inntak slíkrar tjáningar skoðað nánar með hjálp lögfróðra. Velt er upp tilvikum þar sem ólík réttindi mætast, það er tjáningarfrelsi annars vegar og friðhelgi einkalífs, persónu og heimilis hins vegar.Er markvissu eftirliti með hatursorðræðu sinnt? Rætt er við Gyðu Stefánsdóttur, aðstoðarsaksóknara hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, um það hvernig það lítur við lögreglunni. Hvers konar ummæli eru það alvarleg að þau heimila takmörkun á tjáningarfrelsi? Hvers konar orðræðu er leyfilegt að bera á borð? Og hvenær gengur hún of lang...
  • Bakslagið V.
    Bakslagið V. 28.09.2026 58m
    Í fyrra var rannsókn birt sem greindi frá því að tíunda hver athugasemd sem látin er falla um hinseginleika í athugasemdakerfum íslenskra síðna er hatursfull. Í þættinum er leitað til fræðafólks og baráttufólks í von um að skilja betur hatursorðræðu, sem og áhrif hennar. Rýnt er í félagsfræðilegar rannsóknir sem benda til þess að fordómafull tjáning á netinu geti haft slæm áhrif í raunheimum. „Hvað gerist þegar fólk verður vart við að aðrir eru að tjá andúð? Þá myndast hætta á því að ómeðvitaðir fordómar fái lausan tauminn og brjótist út,“ segir Jón Gunnar Bernburg, prófessor í félagsfræði við...
  • Bakslagið IV.
    Bakslagið IV. 21.09.2026 58m
    Í þættinum heyrum við af stöðu mála meðal yngri kynslóðarinnar. Hrefna Þórarinsdóttir, forstöðukona hinsegin félagsmiðstöðvarinnar, segir frá líðan þeirra ungmenna sem leita til þeirra í hverri viku. „Ég hef aldrei upplifað ástandið eins krefjandi og erfitt og einmitt núna,“ segir hún. Í kjölfar óvæginnar umræðu, sem hefur blossað upp annað slagið í umræddu bakslagi, hefur málum tengdum sjálfsskaða fjölgað, greinir hún frá. Einnig kynnum við okkur trans teymi barna og unglinga. Rætt er við Björn Hjálmarsson, barnageðlækni og Ragnar Bjarnason, innkirtlalækni barna um starfsemi teymisins, algeng...
  • Bakslagið III.
    Bakslagið III. 14.09.2026 58m
    „Viðbrögðin voru þau, að þegar þessi þáttur var sýndur þá skildist mér að það hefði mátt heyra saumnál detta. Fólk vissi ekkert af þessu. Þetta var nýtt fyrir þeim,“ segir Anna Kristjánsdóttir um viðtal sem var tekið við hana stuttu eftir að hún kom út sem trans árið 1994. Við rifjum upp sögu Önnu í þætti dagsins, og merkilegan þátt hennar í réttindabaráttu trans fólks hér á landi enda var hún fyrsti Íslendingurinn til að koma opinberlega út sem trans. Hlustað er á eldri viðtalsbrot þar sem tíðarandi 10. áratugarins skín í gegnum spurningar fjölmiðlafólks. „Þegar maður var ein að berjast fyrir...
  • Bakslagið II.
    Bakslagið II. 07.09.2026 1h
    ,,Það sem er sárast er að horfa upp á það hatur, þann fjandskap og þá heimsku sem beinist að trans fólki á Íslandi,’’ segir Þorvaldur Kristinsson, rithöfundur og fyrrverandi formaður Samtakanna 78. Þorvaldur er einn þeirra sem tóku slaginn á fyrstu árum réttindabaráttu hinsegin fólks á Íslandi. Í þættinum er ferðast aftur í tímann. Spiluð eru brot úr útvarpsþætti frá 1983 þar sem hlustendum gafst kostur á að hringja inn og deila skoðunum sínum á málefnum „hómósexúal fólks“ eins og það var kallað á þeim tíma. Hljóðbrotin gefa innsýn í tíðarandann á níunda áratugnum og baráttu Samtakanna 78. Rúm...
  • Bakslagið I.
    Bakslagið I. 02.08.2026 56m
    „Á endanum er það fólkið sem kýs að gera ekki neitt sem veitir öfgaöflum brautargengi,“ segir Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju, sem er meðal viðmælenda í fyrsta þætti nýrrar stuttþáttaraðar um bakslagið í málefnum hinsegin fólks hér á landi. Í fyrra kom út rannsóknarskýrsla, kortlagning á stöðu líðan og réttindum hinsegin fólks á Íslandi, þar sem í ljós kemur að líðan fólks virðist ekki í samræmi við þau lagalegu réttindi sem hafa náðst á síðustu áratugum. Þáttaröðin er og verður ferðalag þar sem leitast er eftir svörum við stórum spurningum á borð við: Hvað gerðist á...
  • Hryggsúlan IV.
    Hryggsúlan IV. 13.07.2026 42m
    Í þessari þáttaröð er hryggsúlu mannsins gerð skil. Burðargrindin er skoðuð frá hinum ýmsu hliðum menningar- og þróunarsögunnar í gegnum persónulegar frásagnir fólks sem vinnur að einhverju leyti með hrygginn, fólks sem kljáist við verki tengda umræddri beinlengju og sömuleiðis fólk sem finnur alls ekki neitt fyrir sinni innri burðargrind.Við sögu kemur raförvun útlima, spelkur, krónískir verkir, Frida Kahlo, hryggskekkja og ýmislegt fleira. Viðmælendur eru Pétur Helgason, stoðtæknafræðingur hjá Össi og Karen Helenudóttir, nemi. Þáttaröðin var unnin og framleidd árið 2021. Hosted on Acast. See...
  • Hryggsúlan III.
    Hryggsúlan III. 06.07.2026 42m
    Í þessari þáttaröð er hryggsúlu mannsins gerð skil. Burðargrindin er skoðuð frá hinum ýmsu hliðum menningar- og þróunarsögunnar í gegnum persónulegar frásagnir fólks sem vinnur að einhverju leyti með hrygginn, fólks sem kljáist við verki tengda umræddri beinlengju og sömuleiðis fólk sem finnur alls ekki neitt fyrir sinni innri burðargrind.Við sögu kemur orðasifjafræði, skartgripir úr hryggjaliðum, stólbök og ýmislegt fleira. Viðmælendur eru Jóhanna Methúsalemsdóttir, skartgripahönnuður, Jón G. Friðjónsson, prófessor emeritus og Jósep Ó. Blöndal, læknirÞáttaröðin var unnin og framleidd árið 202...
  • Hryggsúlan II.
    Hryggsúlan II. 29.06.2026 43m
    Í þessari þáttaröð er hryggsúlu mannsins gerð skil. Burðargrindin er skoðuð frá hinum ýmsu hliðum menningar- og þróunarsögunnar í gegnum persónulegar frásagnir fólks sem vinnur að einhverju leyti með hrygginn, fólks sem kljáist við verki tengda umræddri beinlengju og sömuleiðis fólk sem finnur alls ekki neitt fyrir sinni innri burðargrind.Í þessum þætti snúum við okkur að lasleika sem hrjáir marga einhvern tímann á lífsleiðinni: bakverkir, bakvandamál. Viðmælendur eru Þorvaldur Ingvarsson læknir, Edda Elísabet Magnúsdóttir, líffræðingur og Jósep Ó. Blöndal, læknirÞáttaröðin var unnin og framle...
  • Hryggsúlan I.
    Hryggsúlan I. 22.06.2026 41m
    Í þessari þáttaröð er hryggsúlu mannsins gerð skil. Burðargrindin er skoðuð frá hinum ýmsu hliðum menningar- og þróunarsögunnar í gegnum persónulegar frásagnir fólks sem vinnur að einhverju leyti með hrygginn, fólks sem kljáist við verki tengda umræddri beinlengju og sömuleiðis fólks sem finnur alls ekki neitt fyrir sinni innri burðargrind.Í fyrsta þætti skoðum við líffærafræði og þróunarsögu hryggsúlunnar. Hvernig fór maðurinn að því að reisa sig upp? Rætt er við Þorvald Ingvarsson bæklunarskurðlækni, Sigurjón Jóhannsson skipulagsfræðing, Þórhall Auð Helgason tölvunarfræðinema og Eddu Elísabe...
  • Skammtafræði IV.
    Skammtafræði IV. 15.06.2026 50m
    Stærðfræðijöfnur og samspil trúar og vísinda er efniviður þáttarins. Hugleiðingar um fyrirbæri og tungumál stærðfræðinnar leiða okkur nefnilega með óvæntum hætti inn í tengsl trúar og vísinda, sem og jú andstæður og aðskilnað þessara tveggja heima. „Grundvallarspurningin er mögulega; Getum við afsannað ákveðnar trúarlegar kenningar með vísindalegri þekkingu? Þetta er eitthvað sem ég hef rannsakað sérstaklega í samhengi við heimsmyndarfræðina,“ segir danski sagnfræðingurinn Helge Kragh en hann er sérfróður um sögu trúarbragða og vísinda og hefur skrifað aragrúa af bókum um efnið. Rætt er við ha...
  • Skammtafræði III.
    Skammtafræði III. 08.06.2026 55m
    „Hver spurning sem skammtafræðin svarar leiðir einfaldlega til annarrar spurningar því við köfum stanslaust dýpra og dýpra og dýpra og dýpra,“ sagði Rob Sutherland, sagnfræðingur við Niels Bohr Institute, í síðasta þætti. Haldið er áfram að kafa ofan í fjarlægan, og þó afar nálægan, og hulinn heim skammtafræðinnar í þætti dagsins. Við sögu kemur köttur Schrödingers, superposition, vangaveltur um orsök og afleiðingu, atómskraftsjár, skammtafræðilegar tilraunir í Háskóla Íslands, skammtatölvur, smættarhyggja og ýmislegt annað. Rætt er við Rögnvald Konráð Helgason, Viðar Guðmundsson, Kristján Leó...
  • Skammtafræði II.
    Skammtafræði II. 01.06.2026 52m
    Við höldum áfram að fikra okkur í gegnum heim hins smáa, heim skammtafræðinnar sem hefur leitt af sér fleiri uppfinningar í nútímasamfélagi en aðrar kenningar. Skammtafræðin á sér yfir hundrað ára sögu. Í þessum þætti víkjum við aftur í söguna og skoðum hvenær og hvernig þetta byrjaði allt saman. Upprunann má rekja til borgar sem Íslendingar þekkja vel, höfuðborgar fyrrum nýlenduherra okkar: Kaupmannahafnar. „Það er mjög áhugavert og spennandi að vera hér í vöggu skammtafræðinnar,“ segir Rögnvaldur Konráð Helgason sem lærir öreindafræði í háskóla borgarinnarMeining bregður sér til Kaupmannahaf...
  • Skammtafræði I.
    Skammtafræði I. 25.05.2026 51m
    „Það sem er miklu merkilegra, og þú ættir frekar að spyrja, er hvernig stendur á því að við getum yfirhöfuð skilið þetta? Það er ekkert fyrir fram gefið að heimurinn sé skiljanlegur,“ segir einn viðmælandinn, en flókinn heimur skammtafræðinnar er til skoðunar í næstu fjórum þáttum. „Skammtafræðin er afskaplega hagnýt. Margt í okkar daglega lífi er hægt að rekja beint til þessa aukna skilnings 20. aldar á eðli efnisins. Ég leyfi mér að fullyrða að það er engin önnur hugmyndafræði sem hefur skilað mannkyninu öðru eins,“ sagði Lárus Thorlacius, prófessor í eðlisfræði við Háskóla Íslands, og nefnd...
  • Mölturiddarar
    Mölturiddarar 18.05.2026 1h
    „Þetta er elsta riddararegla í heimi,“ segir Hreinn Líndal, einn íslensku Mölturiddaranna en þeir eru átta talsins, sjö karlmenn og ein kona. Þau tilheyra hinni kaþólsku Möltureglu, sem er frábrugðin flestum öðrum kaþólskum trúarreglum að því leyti að hún er alþjóðlegur lögaðili, gefur út sín eigin vegabréf, frímerki, númeraplötur og mynt. Möltureglan er með sendiráð í 115 ríkjum, sendiherra hjá Evrópusambandinu og áheyrnarfulltrúa í Sameinuðu þjóðunum. Það er gjarnan talað um hana sem hálffullvalda þjóðréttaraðila enda ríki án íbúa og eiginlegs landsvæðis. Í þættinum er fræðst um Mölturiddara...

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.