Bíófíklar
Bíófíklar Hlaðvarp
0
Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson og Tómas Valgeirsson.
Episodes
-
Event Horizon (1997) 06.11.2026 1h 5mEvent Horizon (1997)Þegar Event Horizon leit fyrst dagsins ljós voru viðtökur volgar ef ekki dræmar, þá sérstaklega á meðal gagnrýnenda. Aðsóknin var heldur ekki upp á marga fiska en í gegnum árin hafa vinsældir þessarar sci-fi hryllingsmyndar stórlega aukist. Margir vilja jafnvel meina að hún sé besta/skásta myndin frá Paul W.S. Anderson. Þetta veltur reyndar á því hvað viðkomandi finnst um Mortal Kombat myndina hans frá 1995.Allavega, á meðal dyggra aðdáenda Event Horizon eru (fasta)gestirnir Einar Michaelsson og Hafsteinn Laxdal. Þeir eru saman sestir niður með Atla (og síðar meir Tomma) til að dásama þessa fullkomlega ófullkomnu og pönkuðu ræmu þar sem meistarar eins og Sam Neill heitinn og Laurence Fishburne leika listir sínar af bestu lyst. Myndin hefur líka merkilega sögu að baki í tengslum við skammarlegan mæli af glötuðu myndefni. Sökum þess að filmunegatífurnar glötuðust mun Anderson aldrei geta gefið út upprunalegu sýn sinni á Event Horizon. En meira um það í spjallinu, þannig að...Upp með blöðin, brjótið þau saman og hlerið súmmeringu bíófíklana. Athugið að skoðanir verða verulega skiptar!Efnisyfirlit:00:00 - Hverjir og hvers vegna?03:52 - Költ-risið06:06 - "Mjög mikið Alien"13:13 - Ónýtt efni20:13 - Lúkk og djammlag26:48 - "Fullkomna millibilið"36:36 - Tími og tölvuleikjamyndir47:28 - (Tommi sestur) 'Heitt teik'?57:37 - Anderson sarpurinn -
The Batman (2022) 30.10.2026 1h 18m“Gleðilega fokking Hrekkjavöku,” mælir einn önugi lögreglustjórinn við Myrka riddarann okkar.Á þessum tímapunkti mætti léttilega halda að meira eða minna allt hafi verið sagt og gert hvað Leðurblökumanninn á hvíta tjaldinu varðar. Að vísu er um að ræða eina vinsælustu hetjuna í sögu dægurmenningar í allri sinni mynd, sem hefur verið sundurtekin, sett saman og tækluð á allan mögulegan máta í myndasögum, sjónvarpsþáttum og tölvuleikjum. Hafsjórinn er gífurlegur en nýir vinklar eru alltaf velkomnir. Gömlu túlkanirnar hverfa ekki og það telst til hins besta máls ef eitthvað getur verið í boði fyrir alla, hvort sem áhorfandinn vill sinn LEGO-Batman, ýktari Batman, kjánalegri Batman, stílískari Batman, reiðari Batman í túlkun Zacks Snyder eða raunsærri Batman-sögu í anda Heat, svo dæmi séu nefnd. Hér er allavega kvikmynd sem hefur vel unnið fyrir því að vera með greini í titlinum. The Batman er satt að segja fyrsta kvikmyndin um þessa fígúru sem hefur eitthvað fyrir stafni og almennilegt að segja um sjálfan Batman! Ekki bara Bruce Wayne; markmiðið, óttann, sorgina, græjurnar eða illmennin, heldur hvað kryddar mótiveringuna, geðshræringuna, hvað lætur kuldalega einstaklinginn tifa og hvernig Batman sem fígúra er í sjálfu sér flótti hjá tilfinningalega lokuðum Bruce Wayne til að hefna sín á krimmahyski borgarinnar, og þá miskunnarlaust með óttastjórnun sem útrás fyrir áfallið að hafa misst foreldra sína. Það er ekkert hetjulegt við Batman á hans upphafsstað í þessari sögu, þrátt fyrir að hafa gegnt markmiði sínu í tvö ár. Innkoma hans í augum andstæðingana og vegfarenda er líkari hryllingsfígúru en hetju með siðgæðisreglurnar eða prinsippin á hreinu. Ýmist er til þess að skoða við þessa hundlöngu en stórlega athyglisverðu endurræsingu. Bíófíklarnir Kjartan, Atli og Tommi fengu DC-prófessorinn Magnús Frey Magnússon aftur i stúdíóið til að rannsaka og rökræða betur allt sem Matt Reeves, Robert Pattinson og stærra teymið hafa fram að færa með þessum 'Se7en/Zodiac' vinkli á Batman-sögu.Smellum á okkur grímurnar, upp með hafnarboltakylfurnar og blöstum hljóðkerfinu í Batman-bílnum; þetta verður djöfulsins fjör!Efnisyfirlit:00:00 - Slasher-Batman!17:29 - Pattinson og Bruce27:21 - Ráðgátan og spillarnir36:24 - Hasar og ofbeldi48:44 - "Útskriftarverk" 56:21 - Hvað veit Riddler?01:08:41 - Hvað framundan er... -
Clayface (2026) 26.10.2026 1h 2mÞessar svokölluðu skúrka- eða óþokkamyndir tilheyra eigin undirflokki ofurhetjumynda á þessu stigi. Nýi DC heimurinn tekur hérna stórt skref í áttina að fjölbreyttari nýjungum með bíómynd sem engan afslátt veitir í sinni ‘body horror’ nálgun. Eða svo deila Bíófíklar um þó allir séu samþykkir því hversu brakandi fersk og kærkomin Clayface er í flóru hasarblaðamynda.Í gestasætinu er DC séníið Magnús Freyr Magnússon, mættur með ótæmandi þekkingu á rótum fígúrunnar Clayface ásamt breiðari sagnarheim, stílum og sögu Leðurblökumannsins. Drengirnir komast heldur ekki hjá því að ræða brenndu brýr svonefnda DCEU heimsins undir taumi Zacks Snyders, samanburði við aðrar illmennamyndir (t.a.m. Joker) og að sjálfsögðu hryllingssnilldirnar The Fly og The Substance, sem Clayface hefur sótt töluverðan innblástur í. Að ógleymdri Darkman, vitaskuld. Best að hlera spjallið og sjá hvað hnoðast úr þessu öllu. Efnisyfirlit:00:00 - DCEU'ið14:07 - DCU'ið...19:53 - Clayface28:48 - Pre-spoiler samantekt43:37 - Yfir í spoilera...49:12 - Helvítis klúbbasenan!55:28 - Hinn heimtufreki Hagen -
Street Fighter (2026) 25.10.2026 1h 2mHér er hún; Þriðja tilraunin að því að koma leikinni kvikmyndaseríu af stað eftir þekktu slagsmálaleikjunum frá Capcom. Nú er sett allt í botn hvað ‘90s fílinginn varðar og í rauninni alla þvæluna eins og hún leggur sig. Hefur kannski loksins náðst að gera vel heppnaða Street Fighter mynd?Grínistinn, fastagesturinn og poppkúltúrs-sérfræðingurinn Bjarni Gautur er mættur aftur til Bíófíkla þar sem saman velta þeir fyrir sér ástand tölvuleikjamynda, skoða alls konar samanburði og klóra sér jafnframt í kollinum yfir því hvers vegna Hollywood þorir sjaldan að fara alla leið með ‘vitleysuna’ þegar kemur að sumu source material’i.Upp með hárið og hafðu eyrun opin. Þetta verður litríkur slagur…!Efnisyfirlit:00:00 - Meiri kjánaleika, takk! 08:47 - Nýja Street Fighter16:35 - Lögin, litirnir og vitleysan27:05 - Samskonar leikjamyndir34:11 - Nálgun leikstjórans42:59 - Sækókraftar og Bison-dúkkur50:19 - "Góður kapítalismi!"56:21 - Samantekt -
Súrt og svarað: Besta hótelið í hryllingsmynd 23.10.2026 57mHver er besta Halloween myndin sem gengur undir titlinum 'Halloween'? Hvaða tónskáld í samtímasögu kvikmynda hafa staðið upp úr og með hvaða leikstjórum? Hvaða fígúra myndi hræða þig mest í svefnherberginu þínu? Hvaða trúður ætti helst ekki að vera í barnaafmæli? Hvað er það sem gerði Digger svona umdeilda og óvinsæla? Og af hverju Kevin?!Fyrir utan hentugt og spaugilegt hrekkjavökuþema þá vill svo skemmtilega til að hlustendur og notendur spjallvettvangs Bíófíkla á Facebook sömdu allflestar spurningarnar að sinni. Sumar þeirra mátulega pönnusteiktar og gallsúrar, og þá er það undir mönnunum við míkrafónana komið að svara þeim. Í svokallaða heita- og gestasætinu er kvikmyndakeisarinn og reynsluþjarkurinn Þórarinn Þórarinsson, betur þekktur sem Tóti úr hlaðvarpinu Tveir á toppnum. Tóti svarar þarna með prýðum í stúdíó Podcaststöðvarinnar með Atla Frey og Tomma þó vissulega gangi liðurinn út á það að aldrei eru nein rétt eða röng svör; Bara skemmtileg og leiðinleg svör!Þú vilt heyra þetta sprell.Efnisyfirlit:00:00 - Tóm krús og Digger06:33 - Hvort er betra kombó?09:59 - Þrjár samnefndar...14:21 - Kruger eða Klippikrumla17:41 - Framúrskarandi og tímalaus20:15 - Af hverju Kevin?24:45 - Hótelpælingar27:17 - Trúðaleg umræða29:45 - Gervigreindarmörk35:55 - Bregðusenuhopp49:20 - Yfirnáttúruleg reynsla -
Trick 'r Treat (2007) 20.10.2026 1h 9mEr kveikt á graskerinu þínu? Ertu ekki alveg örugglega með nammi til þess að gefa öllum krökkunum? Það er eins gott. Annars gætirðu lent í hrekkjavökuandanum Sam.Trick ‘r Treat er safnverkamynd (e. Anthology film) þar sem við fylgjumst með fjórum (eða fimm, ef þú ert Íris) hryllingssögum sem gerast á sömu hrekkjavökunni. Þar fá þau sem brjóta reglur hrekkjavökunnar ill örlög af höndum hrekkjavökuandans eða einhvers þaðan af verra í sönnum teiknimyndasögustíl. Íris fær til sín í stúdíóið hryllingsmyndaáhugamanninn og söngfuglinn Jökul Erni Jónsson sem er mikill hrekkjavökumaður. Þau ræða um hrekkjavökuhefðir, hrekkjavökumyndir og kryfja síðan sögurnar sem Trick ‘r Treat fjalla um. Þau ræða um reglur myndarinnar, hvaða saga þeim fannst best, vísanir í aðrar hryllingsmyndir -og þætti og margt fleira.Kveikið á kerti, dragið fyrir og njótið. En ekki gleyma að fylgja reglunum.Efnisyfirlit:00:00 - Hryllingshefðir14:53 - Trick 'r Treat/Skólastjórinn 21:08 - Vinkonurnar fjórar39:14 - Draugasöguvæbið53:00 - Sælgætisskrímslið -
The Guest (2014) 19.10.2026 52mHver elskar ekki Dan Stevens? Svona í alvörunni… Þennan fáránlega myndarlega og hæfileikaríka mann sem gladdi fyrst ófáu hjörtun með hlutverki sínu í Downton Abbey áður en hann fór að spreyta sig í margs konar litríkum rullum. Misgáfulegum kannski, en allavega fjölbreyttum.Kómíski hryllingsþrillerinn The Guest markaði gífurleg kaflaskil hjá Stevens þar sem hann þótti ekki lengur vera bara “gæinn úr Downton Abbey,” heldur allur fjandinn. Að sama skapi fór Maika Monroe að rísa hærra upp stjörnuhimininn með þessari næstum-því-óflokkanlegu mynd. Engu að síður er þetta bráðskemmtileg költ-mynd sem tvímælalaust er þess virði að ræða og stúdera aðeins, og þá sérstaklega svona í mánuði Hrekkjavöku.Í þessum merkilega ‘gestalausa’ þætti fara Bíófíklar yfir lítt séðu legasíu þessarar hressilegu myndar. Þá koma þeir einnig inn á feril Adams Wingard og þennan umræðuverða ‘þemaþríleik’ sem samanstendur af You’re Next (2011), The Guest og Onslaught (2026).Sperrum öll upp eyrun og víkkum út augun fyrir bræðandi og stórhættulegu töfrum fyrrum "Downton Abbey-gæjans" eða hvað hann heitir...Efnisyfirlit:00:00 - Kvikmyndaárið 201410:12 - Aðeins um Adam Wingard20:39 - Dan fokkin' Stevens!30:01 - KPG38:52 - Þegar stórt er spurt...43:20 - Þegar allt fer til fjandans47:56 - Aftur að Wingard 51:11 - Tillaga... -
Street Fighter (1994) 13.10.2026 58mHvernig getur eitthvað verið svona ofboðslega vont en samt svo skemmtilegt á sama tíma? Hér erum við með JVCD á kókaíni, leiksigur frá Raul Julia í hinstu rullu kappans, heljarinnar haugur af aukapersónum, vitleysu, áróðri, búningum, nefnið það. Þetta er 'næntís' myndin Street Fighter.Bíófíklar taka glettilega á móti Bjarna Gauti og Arnóri úr Tölvuleikjaspjallinu. Í sameiningu skulu þeir krafsa í þessari gölnu stúdíómynd sem gerði svo ótrúlega margt rétt og ótrúlega margt kolvitlaust á sama tíma. Þá skal einnig ræða anime viðaukann 'Street Fighter II: The Animated Movie...' (... Arnóri til mikillar gremju)Beint í búningana með alla, upp með pósurnar og smellum Martin Luther King á fóninn. Þetta verður gufuruglað!Efnisyfirlit:00:00 - "70 karakterar í bíómynd"08:50 - Kóngurinn 'Húlía'!24:00 - Steven De Souza33:19 - 'Bisonics'38:43 - 'Vei, stríð!'42:42 - Street Fighter II: The Anime...51:51 - "We Can All Go Home"... -
Hedwig and the Angry Inch (2001) 12.10.2026 53m“Ég er nýi Berlínarmúrinn, beibí! Rífðu mig niður!”Hedwig and the Angry Inch er költsöngleikur úr smiðju John Cameron Mitchell og Stephen Trask. Þar er sjálfsmynd, kyngervi og hinseginleiki könnuð í gegnum ærslafull og angurvær rokklög sem oft fylgja teiknaðar senur.Myndin er byggð á Off-Broadway söngleik og var gerð af sömu mönnum og skrifuðu söngleikinn. John Cameron Mitchell sem leikur Hedwig leikstýrði henni meira að segja!Hún græddi lítið í bíó en þegar á vídjóleigurnar var komið fann hún sinn aðdáendahóp eins og gengur og gerist með költmyndir. Ásamt því hefur söngleikurinn notið meiri vinsælda í gegnum tíðina, sérstaklega eftir að Neil Patrick Harris söng hlutverk Hedwig á Broadway 2014. Íris fær Hauk Heiðar Steingrímsson til sín í stúdíóið enn á ný en í þetta skiptið dregur hann eiginmann sinn og rokksöngleikjaáhugamanninn Jón Baldur Bogason með sér. Þar kryfja þau atburðarrás myndarinnar ásamt lögunum. Þar kviknuðu upp margar spurningar: Hvaða lag var best? Hvað er kyngervi Hedwig? Er Yitzhak karl eða kona og hvernig á maður að bera fram þetta nafn? Hver er í rétti, Hedwig eða Tommy Gnosis? Taktu hárkolluna úr kassanum því nú ætla þau að leiða þig í gegnum þennan grimma, litla bæ.Efnisyfirlit:00:00 - Þættir og bíóuppeldi10:10 - Pönkið í Hedwig18:01 - Geggjuð tónlist31:22 - Litríkar aukapersónur40:10 - Um ákvörðunarrétt46:04 - Hvað með þennan endi? 52:04 - Samantekt -
Topp 5: Alex Garland 09.10.2026 1h 21mAlex Garland er mikill meistari þegar kemur að stórum hugmyndum, mannvonsku, níhilisma og abstrakt hugmyndum og enn fremur vísindaskáldskap. Garland hefur skrifað bækur, kvikmyndahandrit og spreytt sig slatta í leikstjórasætinu en þess vegna liggur hann nú undir smásjá Bíófíkla.Gestur er Þorsteinn Valdimarsson og slæst í för þremenningana um að bera saman gerólíka lista, mismunandi kríteríur og einna helst hvort sjónvarpsserían Devs fái að fljóta með?Svarið er já. En þá er enn haugur af safaríkari spurningum eftir og misskýrum svörum, pælingum eða umræðupunktum, sem ætti að vera í ágætum stíl við Garland sjálfan. Efnisyfirlit:00:00 - Af hverju Garland?12:09 - Þungbær breyskleiki…30:01 - Ólíkir listar33:45 - Warfare38:20 - MEN40:45 - Annihilation43:21 - 28 Years Later47:41 - Dredd51:04 - Devs55:34 - 28 Days Later ofl. -
Coyote vs. Acme (2026) 03.10.2026 1h 6mFæðingin var erfið en myndin loksins skilaði sér. Eftir að stórrisarnir hjá Warner Bros. ákváðu svo eftirminnilega að hætta við útgáfu og dreifingu myndarinnar Coyote vs. Acme voru komnar vangaveltur um hvort myndin ætti nokkurn tímann eftir að líta dagsins ljós (enda munum við hvernig fór fyrir aflýstu Batgirl myndinni...). Nokkrum árum síðar kom framleiðslufyrirtækið Ketchup til að bjarga öllum málum og þar af leiðandi gefa myndinni tækifæri til þess að eiga eitthvað líf eða í það minnsta skila sér til áhorfenda. Coyote vs. Acme tekur frumlegan vinkil á dómsmálaþriller í hálfgerðum '90s stíl og sýnir hvað tæki við ef hinn góðkunni Wylie E. Coyote myndi loksins ákveða að lögsækja stórrisana hjá Acme kompaníinu eftir síendurteknar bilanir á græjunum þeirra. Eftir taumlausar feilaðar tilraunir til að klófesta Road Runner-fuglinn er komið að hörðu baráttunni, en það lögsækir enginn stórfyrirtæki eins og Acme án afleiðinga og mögulegra ormagryfja. En ætli þá sléttúlfurinn komist þá nokkuð nær stóra draumnum að ná þessum blessaða fugli eða er stærri hugsjónarbarátta tekin yfir? Bíófíklar fengu brellumeistarann og trausta fastagestinn Fannar Traustason til að veita örlitla innsýn á bak við gerð þessarar myndar. Upp koma líka stærri spurningar, eins og hvort þetta gæti sennilega verið langbesta 'Looney Tunes' myndin, eða í það minnsta sú snjallasta. Fannar vekur einnig upp spurninguna um hvort myndin gæti líklega verið *of* snjöll ef ekki fullorðinsleg fyrir yngri hópana.Og talandi um það, ætli einhver fjórmenninganna í stúdíóinu hafi horft á hana með íslensku tali?Ein leið er til að komast að þessu, og það er að skella sér í sparifötin, setjast í dómsalinn, sperra upp eyrun og hlera drengina kveða upp úrskurðinn um ágæti (eða ofmat...) þessarar leiknu- og teiknuðu bræðingarmyndar. Hlaupum af stað og könnum málið.*Meep meep!*Efnisyfirlit:00:00 - Aðkoma Fannars að myndinni07:48 - Langt ferðalag útgáfunnar19:03 - Looney Tunes minningar27:30 - Meira um brelluvinnu40:03 - Bíófíklar vs. Acme48:48 - Ný hlið fígúranna51:06 - Spillar og sprell01:00:56 - Í samanburði við… -
Clue (1985) 29.09.2026 55mSex gestir. Einn herragarður. Eitt stórt morðmál. Þegar gestgjafinn er myrtur breytist kvöldverðurinn í brjálaðan 'whodunit' leik þar sem enginn er saklaus og lík halda áfram að skjóta upp kollinum! Skemmst er frá því að segja að Clue er stálhress blanda af ruglaðri spennu, háði og '80s húmor, en eins og nafnið eða lýsingin gefur til kynna er myndin byggð á borðspilinu stórfræga. Upphaflega gefið út undir nafninu 'Cluedo'.En vissir þú að nafnið Cluedo væri samblanda af Clue+Ludo? og að það hafi alltaf verið upprunalegt nafn spilsins en breytt fyrir amerískan markað? Og eigum við að ræða hvað frammistaðan og hlaupagangurinn hjá Tim Curry* í þessari mynd er mikil frussandi snilld?!Íris, Tommi og Auður Svavars eru sest við matarborðið til að finna út hvernig í ósköpunum þessi mynd fúnkerar svona vel og hvað dræma aðsókn hennar á sínum tíma hefur rænt frá okkur heilu flóruna sem við hefðum getað fengið af flippuðum borðspilsförsum.En... Upp með vopnin og í gang með fókusinn. Nú þarf að leysa eina galna ráðgátu...*Og hvíl í friði, elsku Tim! Bíófíklar eru þér ómælanlega þakklátir fyrir allar yfirdrifnu minningarnar og ekki síst hláturinn.Efnisyfirlit:00:00 - ‘Gistipartímynd’07:53 - Ólíku endarnir12:45 - Karaktersúpusnilld21:41 - Borðspilsmyndir31:28 - Í andstæðulitum36:36 - Íslenskt Clue48:07 - Samantekt -
Primetime (2026) 29.09.2026 1hÞað er ekkert lítið sem Robert Pattinson hefur verið að safna að sér þvílíkum leiksigrum þetta árið. Fyrst var það The Drama, síðan The Odyssey og má sjálfsagt vænta þess að hann geri eitthvað gúrme við rulluna sína í hinni væntanlegu Dune: Part Three. Þá komum við að Primetime, þar sem Pattinson gjörsamlega hverfur inn í hlutverk sitt sem hinn alræmdi og heimsfrægi Chris Hansen.Mynd þessi er algjörlega gerð án samþykki Hansens og fjallar um áhugavert tímabil í bandarískri sjónvarpssögu þar sem þættirnir To Catch a Predator hófu göngu sína áður en allt framleiðsluferlið varð að hreinræktaðri katastrófu.Bíófíklar buðu Gabríel Jean-Sage De-Fontenay aftur velkomnum í stúdíó Podcaststöðvarinnar þar sem margbrotið umræðuefni er til umfjöllunar. Drengirnir við míkrafónanna stúdera stílbrögð, narratífu og almennan árangur þessarar bíómyndar auk þess að kafa aðeins út í ‘TCAP’ bóluna, áhrif hennar og eftirleiki.Hlustandi er hvattur til að fá sér sæti og láta vel (en ekki of vel…) um sig fara, því nú hefst óþægilega samtalið.Efnisyfirlit:00:00 - Skandalar í brennidepli07:17 - To Catch a Predator13:23 - Peningar, frægð og status20:03 - Lance Oppenheim er…32:02 - Ósamþykki Hansens37:13 - Um dekruð börn…41:15 - Fávitar og spillar49:51 - (Sjálfs)blekkingarleikir -
Resident Evil (2002-2017) 25.09.2026 1hResident Evil serían úr smiðju hins umdeilda Paul W.S. Anderson þykir vægast sagt… tja… umdeild. Það er ekki hægt að þverneita fyrir hæfileikum Millu Jovovich til að pósa í slow-mo skotum, og myndirnar vissulega mokuðu inn sérdeilis hlass af seðlum, þó aðdáendur tölvuleikjanna sátu ekki glaðir með úrvinnsluna.Til að viðra með Bíófíklum hinar ýmsu vangaveltur varðandi þessa seríu er Gabríel Jean-Sage De-Fontenay stiginn inn í stúdíóið. Skemmst er frá því að segja að Gabríel er mikill unnandi leikjanna.Merkilegt nokk þá sammælast mennirnir við mækana ekki um hver er besta eða skásta myndin í þessari bíóseríu, en hvað með verstu?Dúndrum okkur í leðrið og leggjumst í sameiningu öll á kaf inn í þennan viðbjóð.Efnisyfirlit:00:00 - Um tölvuleikina…06:51 - Resident Evil17:02 - Apocalypse24:40 - Extinction32:14 - Afterlife42:07 - Retribution47:12 - The Final Chapter ofl. -
Resident Evil (2026) 21.09.2026 1h 3mResident Evil vörumerkið hefur tekið á sig ýmsu umdeildu formin og sérstaklega í tengslum við bíómyndirnar. Nú hefur undraaflið Zach Cregger, maðurinn á bak við Barbarian og Weapons, fengið að sitja við stjórnvölinn með tótal endurræsingu og þeysireið sem margir netverjar segja að gæti verið best heppnaða ‘tölvuleikjamyndin’ til þessa. Sumir hafa jafnvel gengið svo langt með að kalla hana ‘Fury Road leikjamyndanna.’ Viktor Árni Júlíusson fastagestur er dyggur aðdáandi Resident Evil tölvuleikjanna og gekk hæstánægður út af þessari mynd. Bíófíklar tóku honum og alls konar umræðum um Cregger, hinar bíómyndirnar og vörumerkið sama og fagnandi. Ekki eru allir á sömu skoðun við borðið um óheflaða hæpið eða ótvíræðu gæði þessarar Resident Evil myndar, en það er heldur betur nóg til að róta í hvað varðar framsetningu, stíl og endalausu páskaegg myndarinnar.Upp með byssurnar, hunsið hengilásin og tökumst á við þessa bölvuðu blóðugu vitleysu saman.Efnisyfirlit:00:00 - Páskaegg Creggers08:45 - Röfl um lúxussali ofl.19:47 - Samantekt án spilla26:55 - Spillar hefjast…33:19 - Bregður og viðbjóður40:14 - Austin power’ið52:25 - Meira svona? -
The Invite (2026) 20.09.2026 56mMatarboð nokkuð hefst á óvenjulegu nótunum og þróast síðan út í enn óvenjulegri áttir í kómíska dramanu The Invite. Þetta er þriðja myndin sem Olivia Wilde leikstýrir en á skjánum snýr hún bökum saman við Seth Rogen, Penelope Cruz og Edward Norton.Íris Árnadóttir leiðir samnörda sína í þessu umræðuboði þar sem The Invite er krufin sundur saman, þar af leiðandi með alls konar spillum.Upp með glösin, niður með buxurnar og leggjumst öll á gott trúnó um stórskemmtilega mynd.Efnisyfirlit:00:00 - Boð og boð13:35 - Þras eða ró24:02 - Ræða Nortons32:02 - Að njóta eður ei44:20 - Endirinn… -
Súrt og svarað: Kokkurinn eða mannætan? 14.09.2026 1h 16mHvort myndirðu frekar vilja að kokkurinn úr The Menu myndi elda handa þér máltíð eða Hannibal Lecter? Hvaða fræga bíómynd myndi svínvirka sem Broadway-söngleikur? Hvaða ‘nepo baby’ leikari er skemmtilegastur? Nú er Bjarni Gautur mættur aftur í stúdíó Bíófíkla en nú í fyrsta sinn að spreyta sig í gallsúra spurningarleiknum þar sem engin svör eru röng. Þetta er meira spurning um að vera réttara en annað.Íris Árnadóttir samdi megnið af spurningunum, en þá er bara að hlera herlegheitin, og í senn spyrja sig hvernig í ósköpunum fimm manns eru í þættinum þegar míkrafónarnir eru bara fjórir…Efnisyfirlit:00:00 - ‘Öðruvísi teik’08:12 - Óþægilegur bangsi12:04 - Kokkurinn eða mannætan?15:09 - Flokkaskipti24:42 - Erlent rímeik28:40 - Þrenna og söngleikir41:06 - Frændsemisbarn…49:01 - “Ha…??!’ mynd59:14 - Horror-klisjur01:05:05 - Rom-com klisjur -
Ghost World (2001) 07.09.2026 59mÞetta er sagan af þeim Enid og Rebeccu eftir að þær klára miðskóla. Þær eiga báðar í erfiðleikum með að tengjast fólki og eyða tíma sínum í að slæpast og að stríða þeim sem þeim finnast óspennandi. Þegar þær kynnast Seymour, sem er utangarðs og elskar að safna gömlum 78 snúninga hljómplötum, þá breytist líf Enid til frambúðar.Atli Sigurjónsson kvikmyndagerðarmaður er mættur í stúdóið til Bíófíkla með samnefndu myndasöguna og hefjast þá ýmsar umræður um muninn á kvikmyndinni og smásögunum, vanmetna leiksigurinn hjá Steve Buscemi og jafnframt hinni viðkunnanlegu Thoru Birch - sem lítið hefur til sést á undanförnum árum. Hið sama á reyndar við um leikstjóra myndarinnar líka.Setjið nú sígildu og fágætu vínylplötuna á fóninn, dressið ykkur upp eftir þörfum og skottist með í þetta sérkennilega ferðalag um líf og langanir minnisstæðra sérvitringa.(Beðist er velvirðingar á því hvað nokkrir við míkrafónana eru slapparalegir til hljóms, en þar er vesalings haustpestin að verki...)Efnisyfirlit:00:00 - Sorgarfregnir úr mannaheimum13:52 - Draugaveröld20:56 - List eða ekki list31:07 - Enid + Seymour38:28 - Thora Birch 44:55 - Scarlet Johansson48:52 - ‘Wowsville’...53:11 - Samantekt -
Grease (1978) & Grease 2 (1982) 31.08.2026 1h 16mGrease er svo sannarlega orðið. Að minnsta kosti akkúrat þessa stundina. Kvikmyndagerðarþjarkurinn Salvör Bergmann hikaði ekki við að rétta upp hönd þegar Bíófíklar sýndu því áhuga að kafa djúpt í báðar myndirnar sem fjalla um skólaklíkur, rómantík, bíladellu og alls konar fjölskylduvæna greddu. Fyrri myndin er hugsanlega ein vinsælasta og þekktasta söngva- og dansmynd fyrr sem síðar og er hvergi skortur á heilum kynslóðunum sem þekkja allflest lögin úr þeirri mynd. Þar að auki var þetta bíómyndin sem skaut John Travolta (og Oliviu Newton-John í einhverjum mæli) hraðar upp stjörnuhimininn.Grease 2 er önnur saga; sú mynd hefur verið stuttlega rædd annað slagið í hlaðvarpinu en aldrei til fulls… fyrr en núna!Það er vægt til orða tekið að fullyrða að Grease 2 er óvinsælli myndin af þeim tveimur; fæstir úr upprunalegu myndinni snéru aftur (en persónurnar voru svo sem löngu búnar að útskrifast…) og lögin þótti alls ekki jafn grípandi að mati áhorfenda og gagnrýnenda. Að vísu er erfitt að neita því að Michelle Pfeiffer átti þarna massasvala innkomu og gladdi fáeinan einstaklinginn með sóló-söngnum ‘Cool Rider’, en listinn yfir kosti þessarar mynda ná sjaldnast lengra en það.Þá að sjálfsögðu er einn ónefndur Bíófíkill sem hefur í áraraðir tekið upp mótorhjólahanskann fyrir hinni veraldlega hötuðu Grease 2. Hvers vegna? Það veit enginn, nema jú, hlustandi góður sem kýs að ganga í klíkuna og hlera þetta djúsí spjall um myndirnar tvær.Efnisyfirlit:00:00 - Minningar af Koppafeiti17:05 - Kynjapólitíkin24:45 - Litrík flóra persóna29:52 - Dans- og bílakeppni36:58 - ‘Fimm-söngleikja-reglan’45:47 - Grease 2…54:01 - Umdeildari lög58:00 - Dólgslæti persóna01:07:22 - Týnda sjónvarpsserían… -
Topp 5: John Waters 25.08.2026 1h 58mBíófíklar elska svo sannarlega flinka, fjölhæfa og fjöruga furðufugla, hvort sem þeir eru fyrir framan eða aftan kvikmyndatökuvélarnar.Hinn elskulegi, groddaralegi, drullufyndni og einkennilegi John Waters á fullkomlega erindi í þennan hóp og nú gefst hlustanda kost á því að fræðast og skyggnast inn í hugarheim mannsins sem færði heiminum Pink Flamingos, Mondo Trasho, Polyester, Hairspray og Cry Baby, svo aðeins nokkur dæmi séu nefnd. Má þá líka gjarnan færa þau rök að Waters hafi kynnt heiminum fyrir óviðjafnanlega skemmtikraftinum Divine.Íris Árnadóttir heldur utan um taum þessa innslags og í stúdíóið með henni eru mættir þeir Ormur Guðjónsson og Haukur Heiðar Steingrímsson. Saman velja þau sínar uppáhalds myndir eftir þennan snilldarlega sérvitring - sem er svo sannarlega ekki allra - og skoða þau ýmsu mynstur sem hafa fylgt honum í áratugaraðir. En aðdáendahópar Waters eru dyggir, mjög svo utangarðs í ýmsum samfélögum og e.t.v. prakkaralegir, líkt og heilinn á bak við titlaflóruna.Hér verður allsvakalega gramsað, rökstutt og róterað í alls konar gúrme skít í tengslum við þessa óvenjulegu filmógrafíu frá enn óvenjulegri kvikmyndagerðarmanni.Ríðum á vaðið, pössum upp á kjúklinginn og höfnum öllum samfélagslegum normum. Hláturtaugar verða sennilega kitlaðar. Efnisyfirlit:00:00 - Testum nú Waters07:03 - Fyrsta upplifunin14:49 - Uppáhalds leikari17:35 - Divine legasían24:27 - Cameo’in og einkennin38:47 - Cry Baby49:42 - Hairspray58:56 - Polyester01:15:27 - Serial Mom01:26:56 - Female Trouble01:42:23 - Pink Flamingos
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.