Framvindan - Tæknihlaðvarp

Framvindan - Tæknihlaðvarp

Gunnur og Gunnlaugur
Country Iceland
Genres Technology
Language IS
Episodes 7
Latest 30.09.2026

Framvindan er hlaðvarp um nýja tækni og gervigreind, þar sem flókin hugtök eru gerð aðgengileg og nýjar tæknilausnir eru skoðaðar og ræddar. Umsjón með þáttunum hafa hjónin Gunnur von Matern og Gunnlaugur Egilsson, sem bæði hafa unnið lengi í tæknigeiranum í Stokkhólmi. Í þáttunum deila þau innsýn sinni með hlustendum sem vilja skilja afleiðingar tækninnar í dag og hvað sé framundan.

Episodes

  • Verður maður heimskur af AI? Hvað gerist í hausnum begar mağur lætur vélina hugsa fyrir sig og hvenær er betra a hugsa sjálfur? - Þáttur #008
    Verður maður heimskur af AI? Hvað gerist í hausnum begar mağur lætur vélina hugsa fyrir sig og hvenær er betra a hugsa sjálfur? - Þáttur #008 30.09.2026 45m
    Gervigreindin getur látið manni líða eins og snillingi, jafnvel þegar vinnan er í raun verri. Við förum yfir það sem við prófuðum sjálf í sumar og spyrjum hvort vélin hjálpi okkur að hugsa skýrar eða sé hægt og rólega farin að hugsa fyrir okkur.Við ræðum líka mikilvægi gervigreindarlæsis, að skilja ekki bara hvað tæknin getur gert heldur líka hvenær við eigum að treysta henni, efast um hana og hugsa sjálf.Gestur þáttarins er Þórunn Vignisdóttir, sem kennir börnum og foreldrum um gervigreind. Með henni ræðum við meðal annars hvers vegna AI-læsi snýst ekki bara um að kunna að nota tæknina, heldu...
  • Hvar eru vélmennin? Gerviástir og iðnaðurinn sem heldur áfram að lofa - Þáttur #007
    Hvar eru vélmennin? Gerviástir og iðnaðurinn sem heldur áfram að lofa - Þáttur #007 28.05.2026 34m
    Við höfum beðið lengi eftir vélmennum sem geta gengið inn í okkar mannlega veruleika.Hollywood hefur lengi lofað okkur að það sé mögulegt.Á sama tíma eru milljónir manna í tilfinningatengslum við hugbúnað sem er bara texti á skjá.Í þessum þætti ræðum við um samband manneskju og vélar og hvers vegna iðnaðurinn heldur áfram að elta manngerð vélmenni.Við förum frá vélmenna draumum og vonum yfir í hvað sé í raun og veru verið að byggja í dag. Við skoðum það útfrá óþægilegum spurningum um samþykki, einmanaleika og þörfina fyrir nálægð.Er sálin þegar komin í hugbúnaðinn, eða erum við enn að bíða eft...
  • Tilfinningar og spjallbottar + Er gervigreind betri þerapisti og vinur en alvöru manneskja? - Þáttur #006
    Tilfinningar og spjallbottar + Er gervigreind betri þerapisti og vinur en alvöru manneskja? - Þáttur #006 12.05.2026 44m
    Spjallbotti getur í dag verið ráðgjafi, vinur, þerapisti og jafnvel rómantískur félagi. Hún svarar samstundis, er alltaf tiltæk og virðist hlusta án þess að dæma.En hvað gerist þegar fólk fer að leita til véla eftir nánd, skilningi og tilfinningalegum stuðningi?Og hvar liggja mörkin milli gagnlegs hjálpartækis og sambands sem byrjar að taka pláss frá raunverulegum tengslum?Við ræðum hvernig fólk er farið að mynda raunveruleg tilfinningatengsl við gervigreind og hvers vegna þessi samskipti geta orðið bæði persónuleg og djúp. Við skoðum hvað það er sem gerir gervigreind svona sannfærandi í hlutv...
  • Myndahöfundar og nýir miðlar: Sköpun, tækni og eignarhald + Hvað er raunverulegt lengur? - Þáttur #005
    Myndahöfundar og nýir miðlar: Sköpun, tækni og eignarhald + Hvað er raunverulegt lengur? - Þáttur #005 05.05.2026 44m
    Gervigreind getur í dag búið til myndir, teikningar og myndskeið á sekúndum, oft í stíl sem tekur listamenn ár að móta. Hraðinn er nýr. Umfangið er nýtt og þróunin hröð.Svo af hverju er umræðan um höfundarétt, eignarhald og gildi listar enn svona óljós?Við ræðum regluverkið og hvaða breytingar eru fram undan. Myndhöfundurinn Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir kemur í þáttinn og við spjöllum um hvernig þessi þróun hefur áhrif á hennar vinnu. Við skoðum hvað gerist þegar myndir, teikningar og málverk færast inn í heim algríma og hvernig það umbreytir hlutverki höfundarins.Við förum yfir tækin og tólin sem...
  • Menntun á krossgötum - Gervigreind í skólanum, heilinn sem vöðvi og framtíð náms - Þáttur #004
    Menntun á krossgötum - Gervigreind í skólanum, heilinn sem vöðvi og framtíð náms - Þáttur #004 28.04.2026 43m
    Harvard prófessor lætur 180 nemendum prufa tvær aðferðir til að læra námsefnið. Fyrst fer hópurinn á fyrirlestur með kennara. Síðan fær hópurinn að læra heima með gervigreindarkennara. Eins próf í lokinn. Gervigreindin vann, og hópurinn lærði tvöfalt meira á færri mínútum.Svo af hverju breytist ekkert í menntakerfinu?Í þessum þætti förum við inn í þetta samtal með Birni Kristjánssyni kennara. Hann er hluti af opinberu tilraunaverkefni sem er að innleiða gervigreind í grunnskóla í Reykjavík akkúrat núna. Við heyrum hvað virkar í raun, hvað er erfitt og hvað kennararnir segja.Við ræðum Harvard r...
  • Hvað varð um metaverse? + VR, AI gleraugu og nýja internetið sem kom aldrei - Þáttur #003
    Hvað varð um metaverse? + VR, AI gleraugu og nýja internetið sem kom aldrei - Þáttur #003 21.04.2026 40m
    Í október 2021 breytti Mark Zuckerberg nafni Facebook í Meta. Hann lofaði okkur nýju interneti, heimsbyggð þar sem við myndum vinna, kynnast og lifa lífi okkar sem avatar í sýndarveruleika.Meta tapaði yfir 83 milljörðum króna á þessum draumi. Samt fór hlutabréfaverðið upp um 3,5% daginn sem fyrirtækið tilkynnti niðurskurð.Í nýjasta þætti af Framvindu skoðum við hvað gerðist í raun og hvert sýndarveruleikinn er að fara.Í þættinum:Af hverju féll metaverse? Og er þetta saga um tækni sem kom of snemma, eða tækni sem var aldrei ætluð venjulegu fólki?VR sem virkar: frá klínískri notkun til iðnaðar,...
  • Framtíð kvikmynda og auglýsinga á tímum gervigreindar + Látnir leikarar snúa aftur með hjálp gervigreindar - Þáttur #002
    Framtíð kvikmynda og auglýsinga á tímum gervigreindar + Látnir leikarar snúa aftur með hjálp gervigreindar - Þáttur #002 13.04.2026 38m
    Kvikmyndaiðnaðurinn er að breytast hratt. Og fólk vill upplifa eitthvað meira en hefðbundið bíó.Við erum ekki lengur sátt við að sitja kyrr og horfa á skjá. Við viljum upplifa og vera inni í sögunni.Í nýjasta þætti af Framvindu skoðum við hvernig tæknin er að umbreyta kvikmyndagerð:Gervigreind styður framleiðsluferla, flýtir vinnu og opnar nýja möguleika.Hún getur jafnvel fært látna leikara aftur inn í kvikmyndir. En hvað þýðingu hefur það fyrir skapandi fólk?Horfðu eða hlustaðu á þáttinn og sjáðu hvert þetta er allt að stefna.Tæki og tól: • Claude (AI assistant): claude.ai • Whisper by OpenAI...
  • Eru íslensk fyrirtæki leiðandi í notkun gervigreindar eða bara einn maður með ChatGPT? + Gervigreindarkulnun + Uppáhalds AI tólin okkar - Þáttur #001
    Eru íslensk fyrirtæki leiðandi í notkun gervigreindar eða bara einn maður með ChatGPT? + Gervigreindarkulnun + Uppáhalds AI tólin okkar - Þáttur #001 07.04.2026 27m
    Í fyrsta þætti Framvindu tökum við á stóru spurningunni: eru íslensk fyrirtæki virkilega leiðandi í notkun gervigreindar, eða er bara einn maður með ChatGPT á hverju skrifstofu? Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands nota 50% fyrirtækja einhvers konar gervigreindartækni, en aðeins 14% hafa mótað sér formlega stefnu. Við ræðum hvað þessar tölur þýða í raun, berum þær saman við Svíþjóð og Bandaríkin, og deilum tólunum sem eru að spara okkur mestan tíma núna.Tenglar og tól:Hagstofa Íslands — Upplýsingatækninotkun fyrirtækja 2024: hagstofa.isNotion – notion.comLM Studio (keyrir AI módel staðbundi...

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.