Gervigreindarklúbburinn

Gervigreindarklúbburinn

Stefán Atli
Country Iceland
Genres Technology
Language IS
Episodes 36
Latest 17.11.2026

Í hlaðvarpi Gervigreindarklúbbsins rýnum við í áhrif gervigreindar á heiminn, vinnuna og lífið sjálft. Hér mætast forvitni og framtíðarsýn þegar við tölum við sérfræðinga, frumkvöðla og skapandi hugsuði sem eru að móta nýja stafræna öld. Við skoðum hvernig tæknin breytir samfélaginu – ekki með ótta, heldur með áhuga og innsæi. Hvort sem þú vinnur í nýsköpun, menntun, listum eða einfaldlega vilt skilja heiminn sem er að verða til, þá er þetta þinn vettvangur til að vera á undan.

Episodes

  • 59. Hvað verður um störfin okkar? – Kristján hjá 50skills
    59. Hvað verður um störfin okkar? – Kristján hjá 50skills 17.11.2026 45m
    Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is.Hvað verður um störfin okkar þegar gervigreind getur unnið sífellt fleiri verkefni?Í þessum þætti fæ ég til mín Kristján, framkvæmdastjóra og einn af stofnendum 50skills. Við ræðum hvernig gervigreind er að breyta vinnumarkaðnum, hvers vegna innleiðingin getur tekið lengri tíma en tæknirisarnir spá og hvaða nýju tækifæri verða til samhliða breytingunum.Kristján segir frá uppbyggingu 50skills og hvernig fyrirtæki geta nýtt gervigreind til að sjálfvirknivæða verkferla. Við veltum líka fyrir okkur hvort við séum tilbúin að hleypa vélmennum in...
  • 58. Frá spjallmenni í persónulegan aðstoðarmann - Magnús Sigurbjörnsson
    58. Frá spjallmenni í persónulegan aðstoðarmann - Magnús Sigurbjörnsson 10.11.2026 41m
    Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is.Hvað ef gervigreindin gæti séð um verkefnin sem þú nennir aldrei að gera?Í þessum þætti fæ ég til mín Magnús Sigurbjörnsson, tölvunarfræðing, ráðgjafa og annan stjórnanda hlaðvarpsins Korter í kosningar. Við ræðum hvernig gervigreind er að breyta vinnunni og hversdagslífinu, með dæmum úr okkar eigin reynslu.Magnús segir meðal annars frá því hvernig hann lét gervigreind leita að lausum tíma í dekkjaskipti og hvernig erindreki tekur saman reikninga fyrir bókarann hans. En hversu mikið sjálfstæði viljum við gefa þessum stafrænu aðstoðarmönnum...
  • 57. PlayStation, GTA og framtíð gervigreindar – Óli Jóels úr Game Tíví
    57. PlayStation, GTA og framtíð gervigreindar – Óli Jóels úr Game Tíví 03.11.2026 49m
    Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is. og Bílaleigu AkureyrarÍ þessum þætti fæ ég til mín Ólaf Þór Jóelsson, Óla úr GameTíví, stofnanda Game Tíví og framkvæmdastjóra heildsölu Senu. Við rifjum upp upphaf Game Tíví og ræðum hvernig tölvuleikjaheimurinn hefur breyst, allt frá fyrstu PlayStation-tölvunni yfir í möguleika gervigreindar í leikjum framtíðarinnar.Óli notar gervigreind í hugmyndavinnu, myndbandsvinnslu og daglegum verkefnum. Hann segir meðal annars frá því hvernig textun myndbanda sem áður tók klukkutíma tekur nú um fimm mínútur. En hvar liggja mörkin? Hann vill halda...
  • 56. Er verið að gera mig óþarfa? Gervigreind og mannauðsmál með Tékk-Inn
    56. Er verið að gera mig óþarfa? Gervigreind og mannauðsmál með Tékk-Inn 29.10.2026 1h 2m
    Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is og Bílaleigu AkureyrarHvað gerist á vinnustaðnum þegar gervigreindin fer að taka við verkefnum sem starfsfólkið hefur sinnt árum saman? Hvernig hjálpum við fólki að sjá tækifærin og gefum um leið áhyggjum þess pláss?Í þessum samstarfsþætti Gervigreindarklúbbsins og Tékk-Inn hittir Stefán Atli þær Helgu og Örnu í spjall um gervigreind, mannauðsmál og framtíð vinnunnar. Við ræðum breytingastjórnun, sálrænt öryggi og hvers vegna mannauðsfólk þarf að vera með við borðið þegar fyrirtæki innleiða gervigreind.Einnig förum við yfir hvernig tæknin...
  • 55. Bergur Ebbi – Erum við að ímynda okkur ranga framtíð?
    55. Bergur Ebbi – Erum við að ímynda okkur ranga framtíð? 27.10.2026 1h 22m
    Hvernig mun gervigreind breyta því hvernig við hugsum, sköpum og ímyndum okkur framtíðina? Og hvað ef framtíðin verður nákvæmlega eins og við sjáum hana fyrir okkur?Í þessum þætti Gervigreindarklúbbsins fær Stefán Atli til sín Berg Ebba, rithöfund, frumkvöðul og einn af stofnendum hlaðvarpsins Fílalags.Tilefnið er meðal annars nýjasta bók Bergs, Öld ímyndunaraflsins, þar sem hann veltir fyrir sér sambandi mannsins við tæknina og því hvernig ímyndunaraflið getur mótað framtíð samfélagsins.Við ræðum hvort gervigreind sé raunveruleg ógn við mannkynið, hvort tæknifyrirtæki hafi hag af því að skapa...
  • 54. Coca-Cola, gervigreind og framtíð markaðssetningar - Atli Sigurður
    54. Coca-Cola, gervigreind og framtíð markaðssetningar - Atli Sigurður 20.10.2026 48m
    Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is.Af hverju þarf að auglýsa Coca-Cola þegar nánast allir þekkja vörumerkið? Og hvað gerist þegar neytendur fara að spyrja gervigreindina hvað þeir eigi að kaupa?Gestur þáttarins er Atli Sigurður Kristjánsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Coca-Cola á Íslandi. Hann veitir innsýn í markaðsstarfið á bak við þekkt vörumerki og segir frá því hvernig hann notar gervigreind til að prófa hugmyndir, vinna með gögn og undirbúa kynningar.Við ræðum um umdeildu Coca-Cola jólaauglýsinguna sem var unnin með gervigreind, endurkomu súperdósarinnar og hve...
  • 53. Getur gervigreind breytt íslenskum fótbolta? - KSÍ
    53. Getur gervigreind breytt íslenskum fótbolta? - KSÍ 13.10.2026 38m
    Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is og akademias.isGetur gervigreind hjálpað Íslandi að halda í við stærstu knattspyrnuþjóðir heims?Ómar Smárason, skrifstofustjóri KSÍ, og Óskar Örn Guðbrandsson, sviðsstjóri markaðssviðs, ræða hvernig KSÍ er að innleiða gervigreind með skýrum ramma um gagnaöryggi, ábyrgð og mannlega yfirferð.Í þættinum ræða þeir meðal annars:⚽ Hvernig gervigreind sparar starfsfólki KSÍ margar klukkustundir📊 Hvernig gögn og tækni nýtast við leikgreiningu og mótahald🤖 Af hverju KSÍ leggur áherslu á Copilot og öruggt vinnuumhverfi🙋‍♂️ Hvernig gervigreind ge...
  • 52. „Prompt er ekki sköpun“ – Þormóður Eiríksson um AI og framtíð tónlistar
    52. „Prompt er ekki sköpun“ – Þormóður Eiríksson um AI og framtíð tónlistar 06.10.2026 54m
    Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is og eignaskanni.is Hvað gerist þegar gervigreind mætir íslenskum tónlistariðnaði?Í þessum þætti sest Stefán Atli niður með Þormóði Eiríkssyni, einum afkastamesta tónlistarframleiðanda landsins, sem hefur komið að hundruðum laga með mörgum stærstu nöfnum íslenskrar tónlistar.Þormóður segir frá leiðinni frá Ísafirði inn í tónlistarbransann, hvernig stórsmellir verða til og hvað skilur góðan tónlistarframleiðanda frá manneskju sem einfaldlega kann vel á tónlistarforrit.Samtalið færist svo yfir í gervigreindina. Þormóður hefur prófað tól á borð við Suno en seg...
  • 51. Krissi Haff: Þú þarft ekki alltaf pepp – stundum bara knús
    51. Krissi Haff: Þú þarft ekki alltaf pepp – stundum bara knús 29.09.2026 51m
    Af hverju að hringja í Krissa Haff þegar ChatGPT getur peppað þig allan sólarhringinn?Í þessum þætti Gervigreindarklúbbsins er gestur minn Kristján Hafþórsson, betur þekktur sem Krissi Haff, félagsfræðingur, fyrirlesari og hlaðvarpsstjórnandi. Við ræðum jákvæðni án innantómra frasa, hugrekkið til að vera maður sjálfur og það sem mannleg samskipti hafa fram að færa á tímum gervigreindar.Krissi segir frá því hvernig missir föður hans á unglingsárum mótaði sýn hans á lífið og hvers vegna jákvæðni snýst ekki um að vera alltaf hress. Við tölum um eiturjákvæðni, mikilvægi þess að halda í vonina og h...
  • 50. Villi Neto - „Ég er í meðvitaðri uppreisn gegn gervigreind“
    50. Villi Neto - „Ég er í meðvitaðri uppreisn gegn gervigreind“ 22.09.2026 52m
    Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is og akademias.isVilli Neto, leikari, grínisti og tónlistarmaður, mætir í Gervigreindarklúbbinn og útskýrir hvers vegna hann er í „meðvitaðri uppreisn“ gegn gervigreind.Við ræðum hvort gervigreind geti skapað raunverulega list, hvað tapast þegar vélar taka yfir skapandi ferlið og hvort fyrirtæki séu of fljót að skera niður kostnað með því að láta listafólk og þýðendur víkja. Villi segir frá áhyggjum sínum af stolnum þjálfunargögnum, falsmyndum, tæknirisunum og því að mannleg kunnátta og sérkenni glatist.Samtalið fer einnig inn á íslenska sög...
  • 49. Frá CCP til Star Wars: Ferill Sigurlínu Ingvarsdóttur
    49. Frá CCP til Star Wars: Ferill Sigurlínu Ingvarsdóttur 17.09.2026 47m
    Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is og akademias.isHvað þarf til að stýra einu stærsta tölvuleikjaverkefni heims — og hvernig veit fjárfestir hvaða leikjahugmynd á möguleika á að slá í gegn?Sigurlína Ingvarsdóttir hefur starfað við tölvuleikjagerð í tæp tuttugu ár. Hún hóf ferilinn hjá CCP, vann að The Division hjá Ubisoft og stýrði framleiðslu Star Wars Battlefront hjá EA DICE. Í dag fjárfestir hún í tölvuleikjafyrirtækjum á fyrstu stigum hjá Behold Ventures.Í þættinum ræða Stefán Atli og Sigurlína meðal annars:Pressuna sem fylgdi því að stýra Star Wars Battlefront.Hvernig...
  • 48. „Þá er sálin alveg farin“ – Háski um gervigreind í tónlist
    48. „Þá er sálin alveg farin“ – Háski um gervigreind í tónlist 10.09.2026 34m
    Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is og akademias.isHvað verður um tónlistarmenn þegar gervigreind getur samið, sungið og pródúserað lag á nokkrum sekúndum?Í þessum þætti Gervigreindarklúbbsins sest Darri Tryggvason, betur þekktur sem Háski, niður með Stefáni Atla og ræðir tónlistina, sköpunina, íslenska tónlistarbransann og áhrif gervigreindar á framtíð tónlistar.Háski segir frá því hvernig verkefnið byrjaði nánast sem djók, hvernig hann var lengi „undercover“ og hvernig lög eins og Hvert ertu að fara? breyttu ferlinum hans. Hann ræðir líka tímabilið þar sem hann reyndi að l...
  • 47. Er gervigreind stærsta siðferðilega áskorun samtímans? - Ketill Berg Magnússon
    47. Er gervigreind stærsta siðferðilega áskorun samtímans? - Ketill Berg Magnússon 08.09.2026 36m
    Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is og akademias.is.Er gervigreind að hjálpa okkur að hugsa betur — eða er hætta á að við hættum smám saman að hugsa sjálf?Gestur þáttarins er Ketill Berg Magnússon, framkvæmdastjóri mannauðs hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, heimspekingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Festu. Hann hefur lengi unnið á mörkum siðfræði, mannauðsmála og ábyrgs reksturs.Í þættinum ræða Stefán Atli og Ketill meðal annars:Af hverju gervigreind ætti að styðja mannlega dómgreind en ekki taka yfir ákvarðanir.Hvernig gervigreind getur endurtekið gamla fordóma við r...
  • 46. Getur gervigreind verið fyndin? – Hugleikur Dagsson
    46. Getur gervigreind verið fyndin? – Hugleikur Dagsson 01.09.2026 46m
    Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is og akademias.is.Getur gervigreind orðið raunverulega fyndin — eða þarf hún fyrst að skilja sársauka, reynslu og mannlega bresti?Gestur þáttarins er Hugleikur Dagsson, teiknari, rithöfundur og grínisti sem hefur í meira en tvo áratugi fengið Íslendinga til að hlæja, hneykslast og velta því fyrir sér hvort þeir hafi yfirhöfuð mátt hlæja.Í þættinum ræðum við meðal annars:Hvað gerðist þegar Hugleikur lét gervigreind semja brandara í sínum stílHvort gervigreind geti skapað list eða sé aðeins verkfæri listamannsinsÓttann við að gervigreind taki...
  • 45. Vandamálið var ekki ég – heldur skólakerfið“ – Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir
    45. Vandamálið var ekki ég – heldur skólakerfið“ – Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir 27.08.2026 50m
    Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is og eignaskanni.is.Þátturinn er einnig í boði Akademias.is.Hvað gerist þegar barni er talin trú um að skóli sé ekki fyrir það — en verður síðan afburðanemandi um leið og námsumhverfið breytist?Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir er lesblind, með ADHD og einhverf. Hún fór óhefðbundna leið fram hjá framhaldsskólanum, lauk BA- og MS-gráðum við University of Florida og stofnaði menntatæknifyrirtækið HARTS. Hún segir að taugafjölbreytileikinn hafi ekki horfið — umhverfið hafi einfaldlega loksins gert henni kleift að nýta styrkleika sína.Í þættinum ræðum við meðal ann...
  • 44. Björn Berg: „Ég myndi aldrei biðja ChatGPT um álit á peningum“
    44. Björn Berg: „Ég myndi aldrei biðja ChatGPT um álit á peningum“ 25.08.2026 48m
    Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is og eignaskanni.isSamstarfsaðili þáttarins er Akademias.is.Er raunverulega hægt að fjárfesta sig til auðs — eða verður fólk ríkt með því að losa sig við skuldir?Björn Berg Gunnarsson, sjálfstæður fjármálaráðgjafi, fyrirlesari og höfundur bókarinnar Peningar, sest í stólinn og ræðir fjármálalegt svigrúm, algengustu mistökin með peninga og hvers vegna sálfræðin skiptir oft meira máli en stærðfræðin.Í þættinum ræðum við meðal annars:• Hvers vegna Björn myndi aldrei biðja ChatGPT um álit á peningum• Af hverju almenn sparnaðarviðmið af TikTok henta ekki öllum•...
  • 43. Helgi Hrafn – Er gervigreindin farin að hugsa fyrir okkur?
    43. Helgi Hrafn – Er gervigreindin farin að hugsa fyrir okkur? 20.08.2026 57m
    Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is og Akademias.isEr gervigreindin að hjálpa okkur að hugsa — eða er hún smám saman farin að hugsa fyrir okkur?Helgi Hrafn Gunnarsson, forritari og fyrrverandi þingmaður Pírata, mætir í Gervigreindarklúbbinn og ræðir af hreinskilni um gervigreind, gagnrýna hugsun, persónuvernd og framtíð samfélagsins.Í þættinum ræðum við meðal annars:Af hverju Helgi telur okkur vera „hvergi nærri AGI“Hvort gervigreind hefði orðið til án höfundarréttarbrotaHvernig djúpfalsanir geta ógnað lýðræði og kosningumHvort hægt sé að hætta á Facebook án þess að detta út...
  • 42. Goonhunter breytti grófu netáreiti í milljónasöfnun - Rósa Björk GoonHunter
    42. Goonhunter breytti grófu netáreiti í milljónasöfnun - Rósa Björk GoonHunter 18.08.2026 47m
    Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is og eignaskanni.isHvað gerist þegar gervigreind getur búið til fullkominn klón af þér — og látið hann vinna meðan þú sefur?Rósa Björk, betur þekkt sem Goonhunter, mætir í einlægt og skemmtilegt spjall. Hún segir frá því hvernig hún byrjaði að streyma tölvuleikjum, hvernig Goonhunter varð til og góðgerðarstreymunum sem hún hefur haldið fyrir Píeta.Rósa ræðir einnig gróft netáreiti sem varð kveikjan að fyrsta góðgerðarstreyminu hennar og hvernig hún ákvað að láta eitthvað gott spretta úr erfiðri reynslu.Í þættinum ræðum við meðal annars:Uppruna Goonhunter og...
  • 41. KK: „Þegar hjartað talar þá heyrir hjartað“ - Gervigreind og tónlist 5
    41. KK: „Þegar hjartað talar þá heyrir hjartað“ - Gervigreind og tónlist 5 11.08.2026 45m
    Getur gervigreind búið til tónlist sem kemur frá hjartanu?Í þessum þætti af Gervigreindarklúbbnum sest KK niður með Stefáni Atla í einlægt og skemmtilegt samtal um tónlist, sköpun, tæknibyltingar og gervigreind.Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is og eignaskanni.isKK rifjar meðal annars upp árin þegar hann ferðaðist um Evrópu með fjölskyldunni og spilaði á götum úti, segir ótrúlegu söguna á bak við Kærleik og tíma og ræðir langt samstarf sitt og vináttu við Magnús Eiríksson.En svo færist samtalið inn í framtíðina.🎵 Hvað gerist þegar hver sem er getur búið til heilt lag á nokkrum sekúndum me...
  • 40. Gervigreind og stjórnmál 4 - Jónas Már
    40. Gervigreind og stjórnmál 4 - Jónas Már 07.07.2026 36m
    Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is og Eignaskanni.isHvar á gervigreind heima í sveitarfélögum — og hvar eigum við að draga mörkin?Í þessum þætti ræðum við við Jónas Má Torfason um AI í opinberri þjónustu, lýðræðislega ábyrgð, gagnavinnslu og ákvarðanatöku. Getur gervigreind hjálpað bæjarfélögum að vinna betur úr gögnum, greina þjónustuþörf og undirbúa betri ákvarðanir — eða er hætta á að við förum að útvista of mikilli mannlegri dómgreind til tækninnar?Við förum líka yfir Kópavogsmálin, leikskóla, barnafjölskyldur, fasteignagjöld og framtíð bæjarins.

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.