Gervigreind
Javelin AI
0
Hlaðvarp um allt sem snýr að gervigreind.
Episodes
-
#19 - Fréttaþáttur: Mythos, Hermes og reikniaflsstríðið 05.05.2026 1h 28mMythos finnur zero-day veikleika, Hermes tekur við af OpenClaw og reikniaflsstríðið er komið í alvöru gír.Apríl var mánuðurinn þar sem áherslan færðist endanlega frá líkönunum yfir á það sem er í kringum þau, og þar sem reikniaflsstríðið milli stóru fyrirtækjanna varð raunverulegt.Í þættinum er farið yfir:Erindrekarnir á fararbroddi: Hermes, OpenClaw, „skills" og hvernig þú gefur erindreka raunverulegt minni.Claude Code-lekinn: hvað gerist þegar fyrirtæki missir kóðann sinn, og af hverju brand-ið skiptir kannski meira máli en uppskriftin.AI-þreyta og tókakvíði: hvað gerist í höfðinu á þér þega... -
#18 - Fréttaþáttur: Claude vs OpenClaw, TurboQuant, Autoresearch og fleira 31.03.2026 1h 19mTímamót hjá Javelin, TurboQuant og baráttan um besta líkaniðÍ þessum þætti ræðum við breytingar hjá Javelin og nýjustu vendingar í gervigreindarheiminum. Við veltum fyrir okkur hvort nýjustu líkönin séu í raun stóra fréttin eða hvort umgjörðin og tólin í kringum þau skipti orðið sköpum.Í þættinum er farið yfir:Framtíð Javelin: Pétur tilkynnir Fenra.is, sem mun nýta gervigreind fyrir byggingargeirann. Einnig kemur fram að Javelin muni brátt hætta með almenn námskeið til að einbeita sér að sérhæfðari verkefnum nær fararbroddi tækninnar.Baráttan um toppinn: Google, Anthropic og OpenAI hafa öll sk... -
#17 - Fréttaþáttur: Gervigreindir vinna saman og Elon Musk í sókn 17.02.2026 1h 6mFréttir síðustu vikna!Sverrir Heiðar og Pétur Már fara yfir það helsta sem hefur gerst í gervigreindarheiminum það sem af er ári.Í þættinum er farið yfir:Fjármögnun & sókn hjá ElonxAI sækir gríðarlegt fjármagn og staðsetur sig sem alvöru keppinaut. Umræða um samruna við SpaceX og uppbyggingu á risavöxnum innviðum.OpenAI í nýjum fasaSamstarf um hraðari inference, nýjar vörur og auglýsingar í ChatGPT.Ný líkön & multimodal byltingStærri samhengis-gluggar, betri mælikvarðar og sífellt meira sannfærandi video- og myndsköpun.Agents & multi-agent workflowsVerkfæri og líkön sem vinna saman í „hjörð“.... -
#16 - Hugbúnaðarlausnir eru of dýrar. Hvernig á að laga það? 27.01.2026 58mHugbúnaðargerð getur verið dýr, flókin og tímafrek. En hvað gerist þegar lítil teymi geta skyndilega afkastað jafn miklu og heilu deildirnar hjá stóru tæknifyrirtækjunum?Í þessum þætti ræðir Pétur Már Sigurðsson við þá Viktor Margeirsson og Gunnar Kolbeinsson, stofnendur Test 13. Þeir settu LinkedIn á hliðina nýverið þegar þeir buðu öllum sem höfðu fengið tilboð frá stóru hugbúnaðarhúsunum (eins og Advania eða Origo) að vinna sama verkefni með 60% afslætti.Í þættinum er farið yfir:Hvernig þeir nýta Replit og gervigreind til að umbylta hugbúnaðarþróun.„Að brjóta LinkedIn“: Viðbrögðin við tilboð... -
#15 - Vibe coding og vibe working 21.01.2026 47mVibe coding og vibe working: Nýja verklagið með gervigreindÍ þessum þætti kafa Sverrir og Pétur ofan í hugtak sem hefur verið að fara sigurför um tækniheiminn: „Vibe coding“ eða fílíngsforritun eins og þeir völdu að kalla það á íslensku. Við veltum því fyrir okkur hvernig vinnan okkar breytist þegar við hættum að skrifa hvern staf og byrjum þess í stað að stýra gervigreindinni eftir „vibe-inu“. Sverrir fagnar því jafnframt að tvær af spám hans fyrir árið 2026 eru þegar farnar að rætast, þótt árið sé varla byrjað.Í þættinum er farið yfir:Vibe coding og fílíngsforritun: Hvað þýðir það þegar forr... -
#14 - Gervigreind sem rak fyrirtæki í þrot 12.01.2026 49mÍ þessum þætti kafa Sverrir og Pétur ofan í eina áhugaverðustu tilraun sem gerð hefur verið með sjálfstæða gervigreind í raunheimum. Við ræðum Project Vend, samstarfsverkefni Anthropic og Andon Labs, þar sem gervigreindinni Claude (undir nafninu Claudius) var fengið það verkefni að reka sjálfsala á skrifstofu gervigreindarsérfræðinga.Hvað gerist þegar tölva þarf að ákveða vöruúrval, verðleggja snakk og eiga í samskiptum við viðskiptavini í gegnum Slack? Við skoðum hvernig tilraunin byrjaði sem „win-win“ staða en fór fljótt út af sporinu þegar mannlegt eðli og takmarkanir tækninnar mættust.Að v... -
# 13 - Málfríður Anna: Nám á tímum gervigreindar 05.01.2026 1hNám á tímum gervigreindar: Svindl eða ný færni? (Gestur: Málfríður Anna)Í þessum þætti fær Sverrir til sín Málfríði Önnu Eiríksdóttur, tölvunarfræðing og verðandi verkfræðing, sem er við það að ljúka meistaranámi í gervigreind við DTU í Danmörku. Málfríður hefur upplifað það af eigin raun hvernig er að vera í háskólanámi á tímum þar sem leikreglurnar eru að breytast á ógnarhraða.Við ræðum „bleika fílinn“ í kennslustofunni, hvernig skólakerfið glímir við nýja tækni og hvort notkun gervigreindar í námi sé í raun svindl eða bara nauðsynleg þróun.Í þættinum er farið yfir:Nám á tímum gervigreindar:... -
#12 - 2026: Okkar spár fyrir komandi ár 31.12.2025 1hGervigreindarspár 2026: "Bingóspjald" framtíðarinnar Í þessum þætti kíkja Sverrir og Pétur í glerkúluna og búa til „bingóspjald“ fyrir árið 2026. Við greinum nýjustu gögnin frá Epoch AI um sjálfbæran vöxt vs. eyðslutrend í tækniheiminum og veltum fyrir okkur hvenær þróun gervigreindar gæti staðnað. Erum við að fara að sjá líkön sem kosta meira en milljarð dollara í þjálfun eða munu tæknilegir flöskuhálsar hægja á öllu?Í þættinum er farið yfir:- Sverrir spáir um hraða framfara á næstu tveimur árum.- Google vs. OpenAI- Milljarð dollara líkanið - RAM-skorturinn- ChatGPT App Store- Meta, Apple og... -
#11 - Árið 2025 í gervigreind 29.12.2025 1h 14m2025 var stærsta ár í gervigreind til þessaVið förum yfir það besta, versta og það sem kom mest á óvartÍ þættinum er farið yfir:• Flopp ársins: Hver átti versta árið? Pétur tilnefnir Microsoft og Copilot fyrir að lofa öllu en standa ekki undir væntingum, á meðan Sverrir ræðir „gervigreind“ sem reyndist vera mannauður í dulargervi.• GPT-5 og væntingarnar: Var þetta árið sem OpenAI hætti að heilla okkur? Rætt um nýju módelin (o1 og GPT-5) og hvort þau hafi staðið undir „hype-inu“.• Satya grípur í taumana: Þegar forstjóri Microsoft lýsir yfir vonbrigðum með sína eigin vöru og tekur málin í sínar... -
#10 - Tilvistarkreppa á tímum gervigreindar 18.12.2025 18mHver er ég ef ekki starfið mitt?Sverrir fær til sín Vagn, heimspeking og Bolvíking, til að ræða hliðar gervigreindar sem sjaldnar er talað um: Þá mannlegu, sálfræðilegu og heimspekilegu.Við ræðum „verufræðilegt áfall“ (e. ontological shock) og hvernig við bregðumst við þegar heimsmyndin okkar brotnar. Hvað stendur eftir þegar gervigreindin leysir verkefnin okkar af hólmi?Í þættinum er farið yfir:3 svefnlausar nætur: Ethan Mollick og áfallið sem fylgir því að átta sig raunverulega á stöðunni.Hver er ég? Mörg okkar skilgreina tilgang sinn út frá vinnu. Hvað gerist þegar því er ógnað?Kópíum og af... -
#9 - Gagnaver í geimnum 16.12.2025 27mEr „skýið“ að fara út í geim?Í þessum þætti kafa Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson ofan í eina villtustu hugmynd tæknigeirans í dag: Að flytja gagnaverin út fyrir gufuhvolfið. Við ræðum verkefni á borð við Project Suncatcher og Project Natick og veltum fyrir okkur hvort þetta sé raunhæft eða bara sci-fi draumar ríkustu manna heims.Í þættinum er farið yfir:Gagnaver í geimnum: Hvers vegna vilja Google og fleiri senda tölvur út í geim? Við skoðum kosti sólarorku á sporbaug og lækkandi kostnað við geimskot þökk sé SpaceX.Hvernig kælir maður tölvu í lofttæmi? Það hljómar eins og geim... -
#8 - Gervigreind sem boðar heimsendi eða útópíu 08.12.2025 1h 10mEr gervigreind að fara að taka yfir heiminn?Í þessum þætti kafa Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson ofan í stærstu spurninguna af öllum: Hvert er gervigreindin að stefna? Erum við á leiðinni í útópíu eða dystópíu – eða verður þetta kannski bara „fínt“?Við ræðum muninn á AGI (Artificial General Intelligence) og ASI (Artificial Super Intelligence) og skoðum þrjár ólíkar sviðsmyndir sem sérfræðingar heimsins eru ósammála um. Allt frá útópískri framtíð þar sem öll vandamál eru leyst, yfir í dökkar spár um endalok mannkyns.Í þættinum er farið yfir:AGI og ASI: Hvenær verður tölvan klára... -
#7 - Eru listamenn búnir að vera? Myndsköpun með gervigreind 01.12.2025 1h 32mBylting í myndsköpun og Nano BananaMyndir segja meira en þúsund orð, en hvað gerist þegar tölvur búa þær til?Í þessum þætti kafa Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson ofan í heim myndsköpunar með gervigreind. Þeir ræða ótrúlega þróun síðustu ára, allt frá fyrstu tilraunum DALL-E til nýjustu tækni Google sem ber hið stórfurðulega nafn „Nano Banana“.Það er áhugavert að sjá hvernig bilið á milli ímyndunarafls og veruleika er að minnka.Í þættinum er farið yfir:Hvaðan nafnið Nano Banana kemur og hvers vegna líkanið er svona öflugt.Hvernig þekkum við gervigreindarmyndir og myndbönd í dag... -
#6 - Google eru bestir í Gervigreind 20.11.2025 1h 28mGoogle er leiðandi í AI-kapphlaupinu.Í þessum þætti kafa Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson ofan í það sem gerðist í fyrradag þegar Google gaf út Gemini 3 og kom sér vel fyrir á toppinum þegar kemur að bestu gervigreindarlíkönunum. Það er fátt jafn skemmtilegt og þegar tæknirisi tjaldar öllu til - og það var einmitt að gerast.Í þættinum er farið yfir:Gemini 3 og hvers vegna þetta er risastórt stökkHvernig DeepMind eiga heiðurinn að mörgum stærstu uppgötvunum síðustu áratugaHvers vegna Google er allt í einu aftur á toppnum í gervigreindForskot Google á öllum sviðum gervigreindarin... -
#5 - Nýjustu fréttir: AI bólan, SlopTok, AgentKit & Orðrómar 20.10.2025 1h 14mEr gervigreind bara bóla?Í fimmta þætti hlaðvarpsins Gervigreind ræða Sverrir og Pétur um nýjustu vendingarnar í heimi gervigreindar.Í þættinum fara þeir m.a. yfir:- Erum við stödd í gervigreindarbólu?- ChatGPT Apps: Ný leið til að leyfa ChatGPT að tengjast ytri þjónustum- Sora 2 : Nýr AI samfélagsmiðill sem hefur fengið viðurnefnið “SlopTok”- AgentKit: verkfæri til að smíða sín eigin verkflæði- OpenAI opnar fyrir gerð erótísks efnis í ChatGPT- Samstarf OpenAI og Broadcom um nýja örgjörvaOg margt margt fleira…Við erum líka á öllum helstu samfélagsmiðlum, endilega fylgið okkar á LinkedIn, Faceb... -
#4 - Mýtur og misskilningur 01.10.2025 1h 17mGervigreind er á allra vörum en skiljum við hana í raun og veru?Velkomin í fjórða þáttinn af hlaðvarpinu okkar, Gervigreind!Í þessum þætti ræða Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson um algengar mýtur og misskilning varðandi gervigreind. Í þættinum ræða þeir meðal annars um:- Er ChatGPT að læra af samtölunum þínum og hefur það áhrif á svörin sem þú færð?- Af hverju skýr og góð samskipti við gervigreind eru oft mun mikilvægari en flókin kvaðning (e. prompt)- Getur ChatGPT komið með frumlegar hugmyndir eða er hún bara að endurtaka það sem hún hefur séð áður?- Áhrif gervigreindar á stör... -
#3 - Erindrekar 02.09.2025 53mHefur þú velt því fyrir þér hvernig framtíðin með gervigreind mun líta út þegar hún fer sjálf að vinna verkefni fyrir okkur? Velkomin í þriðja þáttinn af hlaðvarpinu okkar, Gervigreind!Í þessum þætti ræða Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson um erindrekar (e. Agents). Í þættinum ræða þeir meðal annars um:- Hvað erindrekar eru og af hverju þeir eru orðnir svona heitt umræðuefni - Hvernig þeir virka og helstu hugmyndir á bakvið þá - Nýjustu lausnirnar sem eru í boði í dag - Tækifæri, áskoranir og framtíðarsýn erindrekaTæknimaður: Kristján GíslasonEditor: Sindri Þór Grétarsson -
#2 - Gervigreind fyrir foreldra 18.08.2025 54mHvað á ég að ráðleggja börnum mínum að gera eða læra í skóla með tilkomu gervigreindar?Hvernig geta foreldrar nýtt sér gervigreind í uppeldi barna?Velkomin í annan þátt af hlaðvarpinu okkar, Gervigreind! Í þessum þætti ræða Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson um gervigreind fyrir foreldra. Í þættinum ræða þeir meðal annars um:Leiðir til að nýta gervigreind hvort sem þú ert með ungabarn eða unglingaAlgengar spurningar frá námskeiðum um gervigreind frá foreldrumHvernig gervigreind getur bæði hjálpað og skemmt fyrir lærdómiViðbrögð almennings við GPT-5 viku seinnaTæknimaður: Kristján...
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.