Aldrei las ég Laxness

Aldrei las ég Laxness

RÚV Hlaðvörp
Country Iceland
Genres Arts, Books, Fiction
Language IS
Episodes 4
Latest 21.10.2026

Bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness hefur það markmið að lesa allar skáldsögur Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð og ræða þær með góðum gestum. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Umsjónarmenn eru Tómas Ævar Ólafsson og Silvía Sif Ólafssdóttir.

Episodes

  • Íslandsklukkan
    Íslandsklukkan 21.10.2026 1h 36m
    Íslandsklukkan eftir Halldór Laxness kom út í þremur bindum árin 1943-1946 og segir hún hrakfallasögu Jóns Hreggviðssonar, rekur pólitískt tilhugalíf og makkeringar Snæfríðar Íslandssólar en fer einnig ofan í saumana á handritasöfnun Arnasar Arneusar. Gestur klúbbsins að þessu sinni er Sandra Barilli, leikkona og skemmtikraftur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 07: Heimsljós II
    07: Heimsljós II 07.10.2026 52m
    Heimsljós er stórvirki sem kom út í fjórum bindum árin 1937-1940 og fjallar um ævi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, skálds og hreppsómaga og vegferð hans á þjáningarbraut lífsins. Í þessum seinni þætti um verkið ræðum við Bára Gísladóttir, tónskáld, um seinni bindin tvö 3. Hús skáldsins 4. Fegurð himinsins.Þátturinn var unninn í samstarfi við Forlagið.Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 06: Heimsljós I
    06: Heimsljós I 17.09.2026 1h 7m
    Heimsljós er stórvirki sem kom út í fjórum bindum árin 1937-1940 og skiptast hlutarnir í 1. Ljós heimsins 2. Höll sumarlandssins 3. Hús skáldsins 4. Fegurð himinsins. Heimsljós fjallar um ævi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, skálds og hreppsómaga og vegferð hans á þjáningarbraut lífsins. Nafnið Heimsljós er sótt í síðustu ljóðlínur kvæðisins Söknuður eftir Jónas Hallgrímsson: Hnigið er heimsljós,/himinstjörnur tindra./Eina þreyi eg þig.Gestur Aldrei las ég Laxness er Bára Gísladóttir, tónskáld sem búsett er í Kaupinhavn. Við tengjumst landa á milli með hjálp nútímatækni og vísinda og ræðum verkið...
  • Aukaþáttur; Salka - ástin og dauðinn
    Aukaþáttur; Salka - ástin og dauðinn 17.09.2026 45m
    Í þættinum ræðum við fyrsta hluta Sölku Völku og sýninguna Salka; Ástin og dauðinn, við leikkonuna, leikskáldið og leikstjórann Unni Ösp Stefánsdóttur. Sýningin er einleikur á vegum þjóðleikhússins og Landnámsseturs Íslands, byggður á fyrsta bindi skáldsögunnar og hefur vakið umtalsverða athygli undanfarna mánuði. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Aukaþáttur; Magnús Jóhann og Laxness safnið / Gunnlaugur Bjarnason og sálmabókasvipur
    Aukaþáttur; Magnús Jóhann og Laxness safnið / Gunnlaugur Bjarnason og sálmabókasvipur 17.09.2026 42m
    Halla hittir Magnús Jóhann Ragnarsson, tónlistarmann, á vinnustofu sinni og ræðir við hann um veglegt Laxness safn sem hann hefur komið sér upp. Síðan ræðir Tómas við Gunnlaug Bjarnason, söngvara, um vörumerkið Laxness, þá sérstaklega línurnar sem einkenna flestar bókakápur skáldsins og nefnast sálmabókasvipur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Aukaþáttur; Davíð Þór á Gljúfrasteini
    Aukaþáttur; Davíð Þór á Gljúfrasteini 17.09.2026 50m
    Í þessum sérstaka aukaþætti Aldrei las ég Laxness komum við okkur fyrir í betri stofunni á Gljúfrasteini ásamt tónlistarmanninum Davíð Þór Jónssyni og ræðum um tónlist innan og í kringum verk Halldórs Laxness, sem og; eðli og tengsl ritlistar, tónlistar, hversdagsleikans og tilverunnar. Einnig verður leikið á flygilinn beint upp úr textum Halldórs og snert á sönglögum sem samin hafa verið við kvæði hans. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 05: Úngfrúin góða og Húsið
    05: Úngfrúin góða og Húsið 19.06.2026 51m
    Úngfrúin góða og Húsið er stutt verk sem Halldór Laxness skrifar um efri stétt í þorpinu Eyvík og tilraunum hennar til að stjórna narratífunni um sjálft sig. Sagan er systrasaga, Rannveig er yngri systirin sem sagan hverfist um en Þuríður er sú eldri sem gift er verslunarmanni þorpsins og gerir allt í sínu valdi til að viðhalda heiðri ættar sinnar og húss - en verk hennar koma því miður niðri á lífi Rannveigar og leggja það eiginlega í rúst. Sagan er talin byggð á raunverulegum atburðum sem og upplifunum Halldórs sjálfs þegar hann sigldi ungur til Kaupmannahafnar. Sögumaður verksins er fjarlæg...
  • 04: Salka Valka
    04: Salka Valka 15.05.2026 1h 41m
    Salka Valka kom út í tveimur bindum árin 1931 og 1932. Sölku skrifaði Halldór Laxness fyrst sem hugmynd að kvikmynd á meðan hann dvaldi í Bandaríkjunum þar sem hann var í viðræðum við framleiðsluöflin í Hollywood um að gera kvikmynd um þessa sterku konu á buxum. Skáldsagan verður síðan til eftir að Halldór snýr aftur heim án kvikmyndasamnings og breytast þá drættir sögunnar umtalsvert en Salka Valka segir í mjög stuttu máli uppvaxtarsögu Salvarar Valgerðar Jónsdóttur, sem er kölluð Salka Valka, á Óseyri við Axlarfjörð. Hún er lausaleiksbarn sem glímir við mikið mótlæti á heljarinnar umbrotartí...
  • 03: Vefarinn mikli frá Kasmír
    03: Vefarinn mikli frá Kasmír 15.05.2026 1h 17m
    Vefarinn mikli frá Kasmír gaf Halldór Kiljan Laxness út árið 1927 við alls konar undirtektir. Sagan hverfist um unga manninn Stein Elliða sem haldinn er miklu hugarvíli og núrótík og leitar lausna við kvillum sínum í stóru hugmyndakerfum heimsins.Vefarinn mikli frá Kasmír er umdeild bók. Stuttu eftir útgáfu birtust tvær frægir og mjög ósammála dómar um hana í sama tímariti annar rómaði hana með orðum eins og: „Loksins, loksins tilkomumikið skáldverk, sém ris eins og hamraborg upp úr flatneskju íslenzkrar ljóða- og sagnagerðar síðustu ára! Ísland hefir eignazt nýtt stórskáld.“ Hinn dómurinn súm...
  • 02: Undir Helgahnúk
    02: Undir Helgahnúk 23.03.2026 1h 2m
    Undir Helgahnúk kom út árið 1924. Verkið skrifaði Halldór Laxness í Benediktínaklaustrinu í Clervaux veturinn 1922, þá tvítugur - og hafði kaþólsk trú sterk áhrif á verkið. Skáldsagan er uppvaxtarsaga Atla Kjartanssonar, prestssonar, sem gengur í gegnum mikla erfiðleika í æsku, missir bróður og móður, og fer í framhaldi að missa trúna. Gestir þáttar eru þau Rán Flygenring, rithöfundur og myndhöfundur, og Halldór Guðmundsson, rithöfundur.Klúbburinn Aldrei las ég Laxness er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér nóbelskáldið, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessar...
  • 01: Barn náttúrunnar
    01: Barn náttúrunnar 20.02.2026 53m
    Í þessum þætti ræðum fyrstu skáldsögu Halldórs, Barn náttúrunnar, með góðum gestum, þeim Vilhelm Neto, leikara og Halldóri Guðmundssyni, rithöfundi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.