HLAÐLIST.

HLAÐLIST.

einarhler
Country Iceland
Genres Arts, Design
Language IS
Episodes 16
Latest 16.11.2026

Hlaðvarp um arkitektúr, skipulag og byggingargeirann. Þáttastjórnendur Einar og Óskar ræða við fólk sem hefur ólíka aðkomu að byggingargreinunum, svo sem arkitekta, verkfræðinga, verktaka og stjórnmálamenn. Þeir fjalla einnig um bækur og fræðigreinar tengdar arkitektúr, auk vettvangsferða og heimsókna í áhugaverð fyrirtæki. Einar rekur arkitektastofuna Sei Studio en Óskar er með doktorsgráðu í arkitektasögu frá Columbia-háskóla og starfar hjá skipulagi Reykjavíkurborgar.

Episodes

  • 28. Gagarín - Sögur í rými
    28. Gagarín - Sögur í rými 16.11.2026 1h 3m
    Gestir þáttarins eru Hringur Hafsteinsson, einn af stofnendum Gagarín, og Magnús Elvar Jónsson, hönnunarstjóri. Gagarín er upplifunar- og sýningarhönnunarstofa í Reykjavík og hefur starfað frá 1994. Meðal verka stofunnar eru Landnámssýningin í Aðalstræti, Eldheimar í Vestmannaeyjum, LAVA á Hvolsvelli og norræni skálinn á heimssýningunni í Osaka 2025.Óskar Örn Arnórsson og Einar Hlér Einarsson ræða við þá Hring og Magnús um sögu Gagarín, aðferðir stofunnar og hvernig sögur eru sagðar í rými. Einnig er rætt um ný verkefni og framtíð sýningarhönnunar.
  • 27. Hjörtur Sigurðsson - Gervigreind á teikniborðinu
    27. Hjörtur Sigurðsson - Gervigreind á teikniborðinu 09.11.2026 1h 4m
    Gestur þáttarins er Hjörtur Sigurðsson hjá Mynstra. Mynstra er ráðgjafarfyrirtæki í gervigreind og stafrænni umbreytingu fyrir byggingariðnaðinn og vinnur meðal annars með BIM, VDC og sjálfvirknivæðingu.Óskar Örn Arnórsson og Einar Hlér Einarsson ræða við Hjört um gervigreind í byggingariðnaðinum. Þeir ræða hvar hún er notuð í dag og hvaða verk í hönnunarferlinu er hægt að gera sjálfvirk. Þeir ræða líka hvað hún gæti þýtt fyrir arkitekta og hvernig hönnunar- og byggingarferlið gæti litið út á næstu árum.
  • 26. Ólöf og Atli - Borgarlínan
    26. Ólöf og Atli - Borgarlínan 02.11.2026 57m
    Ólöf Kristjánsdóttir og Atli Björn Levy gegna lykilhlutverkum í þróun Borgarlínu. Þau eru bæði samgönguverkfræðingar, Ólöf starfar hjá COWI áður Mannvit og Atli Björn er forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu. Þau sögðu okkur frá stöðu verkefnisins, áskorunum og næstu skrefum.
  • 25. Albína Thordarson - Sigvaldi Thordarson, arkitekt
    25. Albína Thordarson - Sigvaldi Thordarson, arkitekt 26.10.2026 59m
    Gestur þáttarins er Albína Thordarson arkitekt. Hún var formaður Arkitektafélags Íslands 2005–2007 og hlaut heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands árið 2025. Meðal verka hennar eru leikskólar, orlofshús og Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði, sem hún teiknaði með systur sinni, Guðfinnu Thordarson.Albína er dóttir Sigvalda Thordarson arkitekts (1911–1964), sem teiknaði 200–300 hús á rúmlega tveimur áratugum. Nýlega kom út bókin Sigvaldi Thordarson arkitekt eftir Albínu og Pétur H. Ármannsson hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi.Óskar Örn Arnórsson og Einar Hlér Einarsson ræða við Albínu um bókina, ævi...
  • 24. Henny Hafsteins og Sigga Maack - Teiknað af konum
    24. Henny Hafsteins og Sigga Maack - Teiknað af konum 19.10.2026 47m
    Gestir þáttarins eru Sigríður Maack arkitekt og Henný Hafsteinsdóttir, minjavörður Reykjavíkur og nágrennis hjá Minjastofnun Íslands. Saman standa þær að Teiknað af konum, gagnasafni um íslenskar konur í arkitektúr.Fyrsti hluti verkefnisins er sýningin Brautryðjendur, sem var á HönnunarMars 2026 og stendur enn í Arctic Space á Óðinsgötu 7. Hún fjallar um þær 28 íslensku konur sem luku námi í arkitektúr fram til ársins 1980.Óskar Örn Arnórsson og Einar Hlér Einarsson ræða við þær um verkefnið, brautryðjendurna og verk þeirra.
  • 23. Guðrún Harðardóttir - Íðorð í arkitektúr
    23. Guðrún Harðardóttir - Íðorð í arkitektúr 12.10.2026 1h 1m
    Guðrún Harðardóttir er arkitekt sem vinnur nú m.a. að því að taka saman myndskreytta orðabók um arkitektúr á íslensku. Guðrún starfaði lengi fyrir ARGOS en hefur nýlega gangsett sína eigin arkitektastofu, g.HARKitekt. Orðaforði í arkitektúr er langt frá því að vera fullnægjandi, mikið er um ensku- og dönskusléttur í fagmálinu og við ræðum hvernig Guðrún er að nálgast þetta verkefni frá ólíkum hliðum.
  • 22. Roger Mullin - Prototypes for a Landscape
    22. Roger Mullin - Prototypes for a Landscape 08.10.2026 52m
    Roger Mullin is an architect and educator at the School of Architecture at Dalhousie University in Halifax, Nova Scotia. His work uses drawing and design-build to explore landscape, coastal communities and the materials of industry. Between 2015 and 2018 he brought four groups of architecture students to Iceland for 12-day field trips. In 2024 he was a visiting professor at the Iceland University of the Arts.Óskar Örn Arnórsson and Einar Hlér Einarsson talk with Roger about his exhibition Prototypes for a Landscape at Slökkvistöðin in Gufunes. The conversation covers drawing on site in conté a...
  • 21. Sigríður Sigþórsdóttir og Hrólfur Cela, Basalt - Baðmenning og Feneyjar 2027
    21. Sigríður Sigþórsdóttir og Hrólfur Cela, Basalt - Baðmenning og Feneyjar 2027 05.10.2026 1h
    Sigríður Sigþórsdóttir og Hrólfur Karl Cela reka arkitektastofuna Basalt ásamt fleirrum. Basalt er ein allra öflugasta arkitektastofa landsins með langa reynslu af ýmsum tegundum verkefna. Stofan er þekktust fyrir sérkunnáttu sína í hönnun baðstaða og Sigga og Hrólfur segja okkur frá sínum verkefnum, þeirra þátttöku í Feneyjarstvíeyringnum á næsta ári og margt fleirra.
  • 20. Ásta Logadóttir - Birta í byggingum
    20. Ásta Logadóttir - Birta í byggingum 28.09.2026 1h 7m
    Ásta Logadóttir starfar sem lýsingarhönnuður hjá verkfræðistofunni Lotu og hefur tekið virkan þátt í stefnumótun og starfi tengt lýsingu á opinberum vettvangi. Ásta fer með okkur í gegnum yfir alla þætti er varða lýsingu og reglugerðir, samanburð við hin Norðurlöndin og margt fleirra.
  • 19. Gunnar Kristjánsson - Þegar hús brenna
    19. Gunnar Kristjánsson - Þegar hús brenna 21.09.2026 1h 7m
    Grunnar Kristjánsson rekur Brunahönnun slf. og hefur verið stórtækur á sviði brunahönnunar í 30 ár. Við ræddum helstu bruna síðustu ára á Íslandi og afleiðingar þeirra, en komum einnig aðeins inn á Grenfell brunann í London, þróun innan fagsins og margt fleirra.
  • 18. Páll Ársæll og Áróra Árnadóttir, HMS - Lífsferilsgreiningar
    18. Páll Ársæll og Áróra Árnadóttir, HMS - Lífsferilsgreiningar 14.09.2026 48m
    Í þættinum komu Páll og Áróra til okkar til þess að tala um innleiðingu lífsferilsgreininga og aðra þætti tengda umhverfismálum í byggingariðnaðinum. Páll og Áróra eru hluti af sjálfbærniteymi HMS og höfðu bæði mikla reynslu í þeim geira áður en þau gengu til liðs við HMS.
  • 17. Snædís Traustadóttir - Fornverk
    17. Snædís Traustadóttir - Fornverk 07.09.2026 59m
    Snædís Traustadóttir er lærður smiður með sérþekkingu á fornu handverki. Hún hefur fengist við ýmis verkefni, m.a. endurnýjun á þaki Landakotskirkju en hún kennir einnig námskeið í fornverki um allt land. Snædís er um þessar mundir einnig í meistaranámi í Noregi, hún kom og sagði okkur frá því og fræddi okkur um ýmislegt er varðar gömlu aðferðirnar.
  • 16. Ásta Birna og Stefanía, ARKIBYGG - Frá Seyðisfirði til Bíldudals
    16. Ásta Birna og Stefanía, ARKIBYGG - Frá Seyðisfirði til Bíldudals 31.08.2026 53m
    Ástíður Birna Árnadóttir og Stefanía Helga Pálmarsdóttir reka saman arkitektastofuna ARKIBYGG, sem stofnuð var árið 2020. Stofan hefur unnið til fjölda verðlauna, þrátt fyrir ungan aldur, en þær hafa einnig verið að vinna mikið í verkefnum á Seyðisfirði og Bíldudal og annars staðar á landinu.
  • 15. Páll Hjaltason - Skipulag Reykjavíkur 2040
    15. Páll Hjaltason - Skipulag Reykjavíkur 2040 24.08.2026 52m
    Páll Hjaltason er einn eiganda +Arkitekta og hefur komið víða við á löngum ferli. Árið 2010 var hann í 7. sæti á lista Besta flokksins og varð í kjölfarið borgarfulltrúi og formaður Skipulagsráð.Páll segir okkur frá tímanum í Reykjavík og m.a. frá gerð aðalskipulags Reykjavíkur 2040, sem nú er í gildi.
  • 14. Auður Hreiðarsdóttir, ESJA - Hófleg þétting og ferðamannastaðir
    14. Auður Hreiðarsdóttir, ESJA - Hófleg þétting og ferðamannastaðir 08.06.2026 49m
    Auður Hreiðarsdóttir rekur arkitektastofuna ESJA. Stofan er tiltölulega ný og var stofnuð í Danmörku í byrjun áratugarins. ESJA hefur fengist við rannsóknarverkefni, haft sigur í samkeppnum og fengist við ferðamannaverkefni. Við töluðum um allt þetta og margt fleirra með Auði.
  • 13. Anna María Bogadóttir - Niðurrif
    13. Anna María Bogadóttir - Niðurrif 01.06.2026 1h 4m
    Anna María Bogadóttir er prófessor í arkitektúr við Listaháskóla Íslands. Hún rekur einnig stofuna Úrbanistan og hefur komið að útgáfu margra bóka um arkitektúr á íslensku. Við töluðum við Önnu Maríu um niðurrif bygginga og tengist það helst bók hennar, Jarðsetning, sem kom einnig út sem kvikmynd árið 2021.
  • 12. Hildigunnur Sverrisdóttir - Samfella og rákun
    12. Hildigunnur Sverrisdóttir - Samfella og rákun 25.05.2026 1h 6m
    Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt og fyrrum deildarforseti arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands, hefur sinnt kennslu, rannsóknum og ráðgjöf í tengslum við félagspólitískt samhengi manngerðs umhverfis, m.a. sem gestaprófessor við Yale. Í þættinum notar Hildigunnur hugmyndir Deleuze og Guattari sem linsu á íslenskt landslag, borgarskipulag og samspil markaðs- og lýðræðis. Einnig ræðir hún kennslu, rannsóknaverkefnið Turfiction og fleiri atriði.
  • 11. Þorsteinn Gunnarsson - Kirkjur Íslands
    11. Þorsteinn Gunnarsson - Kirkjur Íslands 18.05.2026 1h 2m
    Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt og leikari, hefur um áratuga skeið verið í fararbroddi í rannsóknum og varðveislu íslenskra menningarminja. Hann var fyrstur Íslendinga til að sérhæfa sig í endurgerð eldri bygginga og hefur m.a. komið að endurreisn Viðeyjarstofu, Nesstofu, Bessastaðastofu, Alþingishússins og Hóladómkirkju. Þorsteinn hefur verið ritstjóri ritraðarinnar Kirkjur Íslands frá upphafi, en um er að ræða 31 bindi um friðaðar kirkjur landsins. Í þættinum fer Þorsteinn yfir íslenska kirkjubyggingarsögu, allt frá torf- og timburkirkjum til steinhlaðinna og steinsteyptra kirkna.
  • 10. Lilja Pálmadóttir - Andinn og efnið
    10. Lilja Pálmadóttir - Andinn og efnið 14.05.2026 39m
    Lilja Pálmadóttir er athafnakona og hrossabóndi á Hofi. Sem myndlistakona hefur hún einnig næmt auga fyrir byggingarlist og hefur átt frumkvæðið af því að láta reisa eða gera upp margar ólíkar byggingar, allar í hæsta gæðaflokki. Hún kom og sagði okkur frá þessum byggingum, samstarfi sínu við arkitekta ásamt mörgu fleirru.
  • 9. Gylfi Ólafsson - Ísafjörður og Vestfirðir
    9. Gylfi Ólafsson - Ísafjörður og Vestfirðir 09.05.2026 48m
    Gylfi Ólafsson var áður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og er nú varaþingmaður Viðreisnar og oddviti Í-listans á Ísafirði, en listinn hefur verið í meirihluta þar síðan 2022. Gylfi fræðir okkur um ástandið á innviðum í sveitarfélaginu og þróun síðustu ára, ásamt því að fara yfir sögu nokkurra af helstu byggingum bæjarins.Nokkrir tenglar á umfjöllun um Ísafjarðarkirkju:https://timarit.is/page/7360713#page/n5/mode/2uphttps://timarit.is/page/6548129#page/n17/mode/2uphttps://timarit.is/page/7346132

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.